Veðurhorfur á landinu
Norðan 8-18 m/s, hvassast austast á landinu. Skúrir eða él á Norður- og Austurlandi, annars léttskýjað. Víða líkur á frosti í nótt.
Norðvestan 10-18 austanlands á morgun og lítilsháttar skúrir eða él fram eftir degi, en mun hægari og yfirleitt bjart í öðrum landshlutum. Hiti 3 til 10 stig. Vestan 3-10 annað kvöld og þykknar upp vestantil.
Spá gerð: 19.09.2025 15:59. Gildir til: 21.09.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag:
Vestan og suðvestan 5-13 og rigning, en úrkomulítið á Suðausturlandi og Austfjörðum. Hiti 3 til 8 stig.
Á mánudag (haustjafndægur):
Suðlæg eða breytileg átt 3-10 og lítilsháttar væta, en rofar til á Norður- og Austurlandi. Hlýnar lítillega vestantil. Vaxandi suðaustanátt vestantil um kvöldið.
Á þriðjudag:
Suðaustan 8-13 og súld eða rigning með köflum, en hægari og þurrt um landið norðaustanvert. Hiti 8 til 13 stig.
Á miðvikudag:
Suðlæg átt og væta með köflum, en bjartviðri norðantil. Hiti breytist lítið.
Á fimmtudag:
Útlit fyrir austlæga átt og dálitla vætu vestan til, en bætir í vind með rigningu sunnantil er líða fer á kvöldið. Spá gerð: 19.09.2025 09:51. Gildir til: 26.09.2025 12:00.

