Ellefu miðaeigendur náðu sér í annan vinning í Jóker sem hljóðar upp á 100 þúsund
Enginn var með allar tölurnar réttar og verður potturinn því sexfaldur í næstu viku og má gera ráð fyrir að hann verði í kringum 100 milljónir á 2. degi jóla. Fimm skiptu með sér bónusvinningnum og fá þeir rúmlega 205 þúsund í vinning, tveir miðanna voru keyptir í Appinu en hinir voru keyptir á eftirtöldum stöðum; N1 í Vestmannaeyjum, Kvikk á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði og Happahúsinu, Kringlunni í Reykjavík.
Ellefu miðaeigendur náðu sér í 2. vinning í Jóker sem hljóðar upp á 100 þúsund kall, þeir keyptu miðana sína á eftirtöldum stöðum; Olís á Hellu, Kvikk á Kleppsvegi, Reykjavík, Olís Dalvík, fimm miðanna voru keyptir í Appinu og þrír eru í áskrift.
Umræða