Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Everton, verður áfram laus gegn tryggingu fram til 17. apríl. Gylfi átti í fyrstu að vera laus gegn tryggingu fram í október, en það var svo framlengt til 16. janúar, en fjallað er um málið á rúv.is
Lögreglan á Manchester-svæðinu framlengdi það svo um þrjá daga og bjuggust þá margir við að rannsóknin væri langt komin. Í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu rúv í morgun kemur hins vegar fram að nú hafi málið enn verið framlengt og Gylfi Þór sé nú áfram laus gegn tryggingu í tæpa þrjá mánuði í viðbót.
Gylfi var handtekinn á heimili sínu um miðjan júlí en hann hefur ekki verið nafngreindur í breskum fjölmiðlum af lagalegum ástæðum. Engar upplýsingar hafa fengist um hvers eðlis brotið er, annað en að það snúist um kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi að því er fram kemur í frétttinni. Þá segir jafnframt að Gylfi Þór hafi ekki verið valinn í íslenska landsliðið eftir að málið kom upp. Þá sé hann ekki í leikmannahópi Everton en samningur hans við Everton rennur út í sumar.