• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Miðstjórn ASÍ lýsir verulegum vonbrigðum með skattkerfisbreytingar fjármálaráðherra

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. febrúar 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

,,Tillögurnar byggja á því að létta skattbyrði allra tekjuhópa og auka ráðstöfunartekjur láglaunafólks og bankastjóra um sömu krónutölu“

Miðstjórn ASÍ lýsir verulegum vonbrigðum með fyrirhugaðar skattkerfisbreytingar fjármálaráðherra sem voru kynntar í gær

Miðstjórn ASÍ lýsir verulegum vonbrigðum með þau áform um breytingar á skattkerfinu sem fjármálaráðherra kynnti í gær og hefur ályktað um málið.
,,Tillögurnar mæta engan vegin kröfum verkalýðshreyfingarinnar um tekjujöfnunar- og tekjuöflunarhlutverk skattkerfisins og geta að óbreyttu ekki orðið grundvöllur sátta í samfélaginu.
Tillögurnar byggja á því að létta skattbyrði allra tekjuhópa og auka ráðstöfunartekjur láglaunafólks og bankastjóra um sömu krónutölu. Stór hluti af því „svigrúmi“ sem fjármálaráðherra telur til skattalækkana er þannig nýtt til að lækka skatta á tekjuhæstu hópana þvert gegn því sem kallað er eftir í samfélaginu.
Launafólk ætlar ekki að borga skattalækkunina sjálft
Engin áform er að sjá um að auka eigi stuðning við barnafjölskyldur og endurreisa vaxtabótakerfið og full ástæða er til að óttast að stór hluti skattalækkunarinnar verði tekin aftur með enn frekari tekjuskerðingum í barna- og vaxtabótakerfinu.
Stjórnvöld virðast ekki ætla að styrkja aðra tekjustofna ríkisins samhliða breytingunni s.s. með upptöku hátekjuskatts, auðlegðarskatti, hækkun fjármagnstekjuskatts eða afgjaldi fyrir auðlindanýtingu. Breytingin mun því þýða að minna verður til ráðstöfunar til brýnna úrbóta, t.d. í velferðarkerfinu og í samgöngumálum.
Launafólk mun aldrei sætta sig við skattkerfisbreytingar sem það borgar sjálft fyrir með veikara velferðarkerfi, verri innviðum og auknum nefsköttum. Slík stefna hefur verið viðhöfð um langt skeið og kemur alltaf verst niður á þeim tekjulægstu. Launafólk vill sanngjarnt skattkerfi sem eykur jöfnuð og fjármagnar velferð.“
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    209 deilingar
    Share 84 Tweet 52
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?