• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 29. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Lúna, Ingi og Heiðar snyrtir

Lúna, Ingi og Heiðar snyrtir

Lúna er áttunda leikrit Tyrfings Tyrfingssonar og það sjötta sem sýnt er í Borgarleikhúsinu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. febrúar 2024
in Afþreying, Ferðaþjónusta, Fréttir, Innlent
A A
0

Lúna sýnd í Borgarleikhúsinu

Það er aðfangadagskvöld jóla og hjónaleysin Lúna og Ingi sitja heima og vilja helst vera einhvers staðar allt annars staðar. Þegar barið er að dyrum er þar hvorki kominn andi jólanna né jólasveinninn heldur Heiðar snyrtir. 

Eins og allir vita sem þekkja til verka Tyrfings er enginn honum fremri þegar kemur að því að skapa persónur, samtöl og aðstæður sem skera inn að hjarta, vekja hlátur en eru um leið svo óbærilegar að þær valda jafnvel líkamlegum óþægindum.

Fréttatíminn mælir með leikritinu sem er mjög gott og fjallar um samband hjá ungu pari en þar er ekki allt sem sýnist. Inn í þá sögu flettast heimsóknir frá Heiðari snyrti og alheims fegurðardrottningu sem leikin er af Sigrúnu Eddu Björnsdóttur sem að sjálfsögðu tæklaði leik sinn frábærlega og af kunnri snilld.

Hilmir Snær fer á kostum í hlutverki Heiðars snyrtis sem kemur inn í líf parsins Lúnu (Ásthildur Úa Sigurðardóttir) og Inga (Sigurður Þór Óskarsson) sem bæði tvö léku sínar persónur á frábæran og mjög sannfærandi og einlægan hátt.

Persónur Tyrfings Tyrfingssonar eru gjarnan á skjön við samfélagið, tilheyra hópi sem oft kallast jaðraður, en eru þegar nánar er að gáð fyrst og fremst breyskar manneskjur – stundum bara aðeins lélegri í að fela breyskleika sína en við hin.

Inn í sambandsörðugleika Inga og Lúnu fer Tyrfingur þá óvenjulegu leið að tefla persónu sem sækir nafn sitt og skírskotar að einhverju leyti í umdeilda og flókna fígúru Heiðars Jónssonar snyrtis. Það skal þó tekið fram að atburðarás verksins er að öllu leyti skálduð og hefur aldrei átt sér stað í raunveruleikanum.

Lúna er áttunda leikrit Tyrfings Tyrfingssonar og það sjötta sem sýnt er í Borgarleikhúsinu, en auk þess var Tyrfingur annar höfunda handrits kvikmyndarinnar vinsælu Villibráð. Þeir Stefán Jónsson, leikstjóri, sameina nú krafta sína í þriðja sinn.

Myndir og nánari lýsing er hér að neðan:

Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Stakk þrjá með hnífi í borginni

    Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    61 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • Skipulögð glæpastarfsemi – Fimm í gæsluvarðhaldi

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Svar héraðssaksóknara til dómsmálaráðuneytisins

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • ,,Pabbi þinn er vondur og hættulegur“ – ,,Èg elska þig pabbi“

    103 deilingar
    Share 41 Tweet 26
  • Slagsmál, innbrot, eldur í íbúð og fleira

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?