• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 7. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Eru vegtollar lausnin?

Endurgreiðir kostnað vegna sjálfsábyrgðar verði tjón á ökutæki

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. febrúar 2026
in Fréttir, Innlent, Neytendur
A A
0

FÍB hefur aukið þjónustuframboð sitt til félagsmanna með nýrri viðbótarvernd sem tekur til eigináhættu vegna kaskó- og framrúðutjóna. Um er að ræða sérstaka aukatryggingu sem endurgreiðir kostnað vegna sjálfsábyrgðar verði tjón á ökutæki, hvort sem um er að ræða kaskó- eða framrúðutjón.

Viðbótarverndin er unnin í samstarfi við danska tryggingafélagið Tryg Forsikring A/S og er miðlað af Tryggingamiðlun Íslands. Allir félagsmenn FÍB hafa nú tækifæri til að kaupa viðbótarverndina jafnt gegn kaskó- eða framúðutjóni. Einnig er í boði að taka báða valkosti á sérstökum afsláttarkjörum sem gildir fyrir alla bíla upp að 15 ára aldri.

Kostnaður fyrir framrúðu og kaskóvernd í eitt ár er:

  • 16.800 krónur fyrir bíla 0–10 ára
  • 18.800 krónur fyrir bíla 11–15 ára

Gildir einnig fyrir bílaleigubíla erlendis

Viðbótarverndin tekur jafnframt til sjálfsábyrgðar vegna tjóna á bílaleigubílum sem leigðir eru erlendis. Ef skráður eigandi bifreiðar með viðbótarvernd leigir sér bíl utan Íslands og verður fyrir tjóni, getur hann fengið allt að 146.500 krónur endurgreiddar af útlögðum kostnaði vegna eigináhættu.

Hækkandi kostnaður vegna framrúðutjóna

Kostnaður bifreiðaeigenda vegna framrúðutjóna hefur hækkað jafnt og þétt undanfarin ár. Ástæðurnar eru einkum tvíþættar. Annars vegar hefur aukinn tæknibúnaður og öryggiskerfi í nýrri bílum gert framrúðuskipti flóknari og kostnaðarsamari. Hins vegar hefur hlutfall sjálfsábyrgðar víða hækkað og er nú oft um 25%. Það þýðir að ef skipta þarf um framrúðu sem kostar 200.000 krónur, greiðir eigandi allt að 50.000 krónur úr eigin vasa. Með viðbótarverndinni er hægt að fá allt að 72.500 krónur endurgreiddar vegna eigináhættu í framrúðutjónum.

Tilkynningar í gegnum Vegbót

Af þessu tilefni minnir FÍB einnig á tilkynningarsíðuna Vegbót sem félagið heldur úti. Þar geta ökumenn tilkynnt um framrúðutjón með upplýsingum um staðsetningu þar sem tjón varð. Sama á við varðandi tilkynningar um holur eða önnur frávik á umferðarmannvirkjum. Tilkynningarnar sendast beint til þess veghaldara sem ber ábyrgð á þeim vegi þar sem holan er eða þar sem steinn fór í framrúðu. Veghaldari fær upplýsingarnar og getur brugðist við með úrbótum. Þetta eykur einnig ábyrgð veghaldara ef ekki er brugðist við og frekari tjón verða.

Með FÍB Viðbótarverndinni viljum við auka á fyrirsjáanleika og lágmarka hættuna á óvæntum útgjöld félagsmanna vegna bifreiðatjóna.

Nánari upplýsingar um kosti og kjör má finna á heimasíðu FÍB.

Umræða
Share10Tweet7
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    122 deilingar
    Share 49 Tweet 31
  • Hægt verði að reka starfsmann án áminningar

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Loðnukvóti til trillu í krókakerfi – LS bendir á meint óeðlilegt kvótabrask

    55 deilingar
    Share 38 Tweet 7
  • Kröpp og djúp lægð vestur af landinu

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?