• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Kórónaveiran og framboð fóðurs og áburðar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. mars 2020
in Erlent, Fréttir, Innlent
A A
0

Útlit er fyrir að framboð fóðurs og áburðar sé tryggt næstu mánuði í heimsfaraldri vegna COVID-19. Samkvæmt Viðbragðsáætlun vegna heimsfaraldurs er lögð áhersla á að ekki verði rof í vöruflutningnum til og frá landinu og á milli landshluta.

Fóður

Matvælastofnun og Bændasamtökin hafa aflað upplýsinga um stöðu fóðurbirgða og framleiðslu hjá fóðurframleiðendum og endursöluaðilum fóðurs, sem selja fóður til bænda.
Samkvæmt upplýsingunum telja þessi fyrirtæki sig hafa tryggt nægjanleg hráefni til næstu mánaða. Þau stefna á að auka birgðir sínar og eru kornskip væntanleg til landsins í mars og apríl. Framleiðslufyrirtækin hafa tryggt sínar sóttvarnir eins og kostur er til að lágmarka hættu á rofi framleiðslunnar þótt einhverjir starfsmenn veikist. Þau hafa meðal annars takmarkað eða bannað óþarfa heimsóknir á starfsstöðvar fyrirtækjanna. Fyrirtækin hafa aukið framleiðslu sína til að eiga birgðir af tilbúnu fóðri ef þörf er á.
Þau fyrirtæki sem flytja inn tilbúið fóður til endursölu hafa haft samband við framleiðendur fóðursins og fengið upplýsingar um viðbragðsáætlanir þeirra. Svör þeirra eru á þá leið að verksmiðjurnar erlendis hafa gripið til svipaðra varúðarráðstafana og íslensku fyrirtækin.
Þessi fyrirtæki tóku jafnframt fram að samstarf við önnur fyrirtæki yrði tekið upp ef tafir verða á afhendingu fóðurs. Þessi staða er ekki í augsýn nú.

Áburður

Áburðarfyrirtækin sem selja áburð til bænda og ylræktar hafa tryggt sér áburð fyrir sumarið. Hluti áburðarins er nú þegar kominn til landsins. Annar hluti er kominn í skip og er á leið til landsins. Það er verið að útvega skip fyrir það sem eftir er.
Ekki er séð fram á takmarkanir á flutningum áburðar til bænda þótt svo fari að takmarkanir verði settar á samgöngur.

  • Upplýsingasíða Matvælastofnunar um kórónaveiruna/COVID-19 og dýr
  • Upplýsingasíða Matvælastofnunar um kórónaveiruna/COVID-19 og matvæli
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Tugi milljarða til Íran frá Íslandi

    61 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • Einfaldara og fljótlegra að uppfæra ökuskírteini

    70 deilingar
    Share 28 Tweet 18
  • Fiskifræðingur segir kvótakerfið algerlega brugðist og lagt landsbyggðina í rúst

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Skjald­borg um sjöfaldan veikindarétt

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Gæsluvarðhald vegna andláts karlmanns í Kópavogi

    58 deilingar
    Share 23 Tweet 15
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?