Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir skýringum fjármála- og efnahagsráðuneytis á fullyrðingum þess um að ólöglegt sé að gera vinnuskjöl ríkisendurskoðanda opinber og birti af því tilefni neðangreinda yfirlýsingu um málið.
Spurt um birtingu vinnuskjala
Tilefnið er tilkynning frá ráðuneytinu 9. mars, þar sem það áréttar nokkur atriði vegna umfjöllunar um félagið Lindarhvol. Fyrirspurn umboðsmanns snertir þó ekki málefni Lindarhvols heldur lýtur að ummælum í tilkynningunni á þá leið að samkvæmt lögum um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ársreikninga sé ólöglegt að gera vinnuskjöl hans opinber.
Vísar ráðuneytið m.a. til nokkurra úrskurða úrskurðarnefndar um upplýsingamál frá árunum 2019-2021 til merkis um að nefndin hafi úrskurðað um þetta atriði mörgum sinnum. Kemur einnig fram að ráðuneytið telji sér skylt að hlíta úrskurðum nefndarinnar og vilji eða afstaða ráðherra og ráðuneytisins skipti engu máli í því samhengi.
Í ljósi þessa óskar umboðsmaður í fyrsta lagi eftir upplýsingum um hvort í tilkynningunni hafi verið átt við að birting vinnuskjala ríkisendurskoðanda sé almennt óheimil eða hvort vísað hafi verið til þess skjals fyrrverandi setts ríkisendurskoðanda sem vikið var að í tilkynningunni.
Sé það afstaða ráðuneytisins að birting vinnuskjala ríkisendurskoðanda sé almennt óheimil, og þá án þess að mat fari fram á atvikum vegna hvers og eins skjals, er óskað skýringa á þeim lagasjónarmiðum sem þar búi að baki. Að lokum er farið fram á að ráðuneytið skýri nánar hvernig niðurstaða úrskurðarnefndar upplýsingamála á þá leið að stjórnvaldi sé heimilt að synja beiðni um aðgang að gögnum geti, ein og óstudd, leitt til þess að stjórnvaldi sé skylt að synja slíku erindi.
Beðið er um svör fyrir 5. apríl nk.
Bréf umboðsmanns til fjármála- og efnahagsráðherra