• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 23. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ísland greiðir kjarnaframlag til UNRWA fyrir gjalddaga

Ísland greiðir kjarnaframlag til UNRWA fyrir gjalddaga

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. mars 2024
in Erlent, Fréttir, Innlent
A A
0

Utanríkisráðherra hefur ákveðið að greiðsla kjarnaframlags Íslands til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) verði innt af hendi fyrir gjalddaga, þann 1. apríl næstkomandi.  

Undanfarnar vikur hafa ráðherra og fulltrúar utanríkisráðuneytisins átt náið samráð við samstarfsríki, á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og við yfirstjórn UNRWA, vegna ásakana um aðild tólf starfsmanna stofnunarinnar að hryðjuverkaárás Hamas á Ísrael þann 7. október. Ísland hefur tekið virkan þátt, m.a. á fundi með aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Áherslur Íslands hafa verið skýrar:

  • Að fram fari ítarleg rannsóknar- og úttektarvinna vegna ásakananna
  • Að fullnægjandi umbætur á starfseminni verði gerðar á grundvelli þeirrar vinnu
  • Að hlutleysi stofnunarinnar og gagnsæi um fjárreiður hennar verði tryggt til framtíðar

UNRWA hefur heimilað óháðar úttektir á starfseminni, að innra eftirlit verði styrkt og eftirlit aukið með starfsfólki. Sérstök rannsóknarnefnd hefur verið skipuð af hálfu aðalframkvæmdastjóra SÞ, sem leidd er af fyrrum utanríkisráðherra Frakklands, auk yfirstandandi rannsóknar innra eftirlits Sameinuðu þjóðanna. Þá hefur UNRWA sett á fót aðgerðahóp um umbætur m.t.t. hlutleysis, ábyrgðarferla og innra eftirlits.

Samkomulag um aukna upplýsingagjöf

Á grundvelli þessa hefur fjöldi framlagsríkja tilkynnt að þau muni hefja greiðslur á ný, þ.á.m. framkvæmdastjórn ESB, Danmörk, Svíþjóð, Ástralía og Kanada.

Samhliða framhaldi greiðslna hafa Danmörk og Svíþjóð gert skriflegt samkomulag við stofnunina um að fá allar sömu upplýsingar og framkvæmdastjórn ESB um niðurstöður yfirstandandi úttektar, og að framlög þeirra njóti sömu verndar og framlög ESB ef trúverðugar upplýsingar koma fram sem dregið geta framkvæmd innra eftirlits í efa.

Ísland hefur gengið frá sams konar samkomulagi við stofnunina.

Samkvæmt rammasamningi Íslands við UNRWA fyrir tímabilið 2024-2028 nemur kjarnaframlag Íslands til stofnunarinnar 110 m.kr. á ári. Undanfarið hefur Ísland auk þess veitt veruleg viðbótarframlög vegna átakanna skv. sérstökum ákvörðunum utanríkisráðherra, m.a. til sjóða Alþjóðabankans til enduruppbyggingar í Palestínu, Alþjóðaráðs Rauða krossins og Rauða hálfmánans og Alþjóðlega sakamáladómstólsins auk UNRWA. Ísland hefur einnig lagt viðbótarframlög í Neyðarsjóð Sameinuðu þjóðanna, sem úthlutaði samtals 18 milljónum bandaríkjadala til mannúðar- og neyðaraðstoðar á Gaza árið 2023.

Tveggja ríkja lausn forsenda friðar

„Vinna síðustu vikna hefur verið algjört grundvallaratriði til þess að við getum haldið áfram að styrkja mannúðaraðstoð í gegnum stofnunina,“ segir Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra. „Við getum aldrei látið almannafé af hendi rakna nema við höfum fulla sannfæringu fyrir því að það renni á rétta staði. Það er samstaða meðal Norðurlandanna um að ótvíræðar umbætur og upplýsingagjöf séu forsenda áframhaldandi stuðnings“. 

„Afstaða Íslands til yfirstandandi átaka er og hefur verið skýr um tafarlaust vopnahlé í þágu mannúðar, tafar- og skilyrðislausa lausn gísla Hamas, virðingu við alþjóðalög og óheft aðgengi mannúðaraðstoðar. Rjúfa verður vítahring ofbeldis og átaka, en friðarviðræður á grundvelli tveggja ríkja lausnar eru eina leiðin til stöðugleika á svæðinu,“ segir utanríkisráðherra.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Djúp og kröpp lægð og önnur á leiðinni

    Djúp og kröpp lægð og önnur á leiðinni

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • Grunur um brot gegn barni á leikskóla í Garðabæ og í fleiri leikskólum

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Lágt verð á krónu er stærsta kjaraskerðingin

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Verð á eldsneyti lækkar

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Veðurviðvörun á Tenerife, stormur og snjór – vinsælum ferðamannastað lokað

    66 deilingar
    Share 26 Tweet 17
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?