Hugleiðingar veðurfræðings
Í dag verður rigning fram eftir degi um landið sunnan- og vestanvert og í kvöld má búast við að úrkoman fari í skúrir en síðar slydduél. Á fjallvegum færist úrkoman fljótt yfir í él. Norðaustan- og austanlands verður að mestu þurrt, þó má búast við að rigni allra austast fram á kvöld. Ágætlega hlýtt en fer kólnandi seinnipartinn, fyrst vestantil og að sama skapi dregur úr vindi.
Fremur hæg suðlæg átt og víða skúrir eða él á morgun,föstudag, en bjart á Norður- og Austurlandi og hiti 0 til 5 stig, Svipað veður á laugardag, en útlit fyrir heldur úrkomumeira veður á sunnudag.
Spá gerð: 20.03.2025 06:29. Gildir til: 21.03.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Sunnan og suðaustan 8-15 og rigning, en úrkomulítið og sums staðar hvassari norðaustanlands. Hiti 3 til 10 stig. Dregur úr vindi á vestanverðu landinu seinnipartinn með skúrum eða éljum og hita 1 til 5 stig.
Sunnan 5-13 og áfram skúrir eða él sunnan- og vestantil, en skýjað með köflum og þurrt um landið norðaustanvert. Hiti 2 til 7 stig að deginum.
Spá gerð: 20.03.2025 04:01. Gildir til: 21.03.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Hæg breytileg átt og dálítil él á norðanverðu landinu með hita kringum frostmark, annars skýjað með köflum, stöku skúrir eða slydduél og hiti 0 til 5 stig.
Á sunnudag:
Suðlæg átt og dáítil rigning eða slydda S-til og hiti 1 til 5 stig, en snjókoma af og til fyrir norðan með hita kringum frostmark. Lægir og rofar til um kvöldið.
Á mánudag:
Suðvestanátt með rigningu eða slyddu og hita 0 til 5 stig, en norðaustlægari og snjókoma með köflum fyrir norðan og hiti kringum frostmark.
Á þriðjudag og miðvikudag:
Breytileg átt og rigning eða slydda með köflum í flestum landshlutum, en fremur milt veður.
Spá gerð: 20.03.2025 07:54. Gildir til: 27.03.2025 12:00.