Karlmaður á fertugsaldri lést í vinnuslysi í Korngörðum í Reykjavík í morgun, en þar varð sprenging í atvinnuhúsnæði. Tveir aðrir voru fluttir á slysadeild, og er annar þeirra alvarlega slasaður.
Tilkynning um málið barst lögreglu rétt fyrir klukkan hálfátta og héldu viðbragðsaðilar strax á staðinn.
Á vettvangi voru nokkrir aðrir starfsmenn þegar að var komið, en hlúð var að þeim í húsakynnum nærliggjandi fyrirtækis. Þeir reyndust óslasaðir.
Umræða

