• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Æðarfugladauði

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. júní 2018
in Óflokkað
A A
0

Æðarfugladauði

Í síðustu viku barst Matvælastofnun tilkynning um að fjölmargar æðarkollur og nokkrir aðrir villtir fuglar hefðu fundist dauðir. Rannsókn á fuglunum á Tilraunastöð HÍ að Keldum leiddi í ljós að um fuglakóleru var að ræða.


Fólki stafar ekki hætta af henni. Fimmtudaginn 14. júní höfðu bændur á bænum Hrauni á Skaga samband við héraðsdýralækni Matvælastofnunar og létu vita um óvenju marga dauða fugla á svæðinu. Rúmlega fjörtíu æðarkollur höfðu fundist dauðar á hreiðrum sínum, ásamt nokkrum máfum og gæs.
Stofnunin hafði samband við Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum og óskaði eftir rannsókn á fuglunum, sér í lagi vegna hættu á fuglaflensu.
Svo vel vildi til að heimamenn áttu erindi til Reykjavíkur og gátu því komið fuglunum á Keldur síðdegis á fimmtudag. Tilraunastöðin brást skjótt við og strax á föstudagmorgni barst svar um að ekki væri um fuglaflensu að ræða. Fuglarnir voru síðan krufðir og fleiri rannsóknir gerðar. Niðurstaða þeirra barst svo á laugardagsmorgun. Í ljós kom að um fuglakóleru var að ræða.
Orsök hennar er bakterían Pasteurella multocida, sem er vel þekkt orsök dauða í villtum fuglum. Einkenni geta verið skyndilegur dauði eins og í þessu tilfelli, en stundum tekur sjúkdómsferlið lengri tíma og fuglarnir veslast smám saman upp. Bakterían finnst í miklu magni í driti sýktra fugla og hræjum af fuglum sem drepist hafa úr sýkingu af völdum hennar. Hún getur lifað af í vatni í þrjár til fjórar vikur og allt að fjóra mánuði í jarðvegi.
Fólk og spendýr, önnur en nagdýr, virðast ekki vera næm fyrir þeim stofnum bakteríunnar sem sýkja fugla. Rétt er þó að minna á að fólk ætti aldrei að snerta dauða fugla með berum höndum, því þeir geta borið ýmsa sýkla sem geta valdið sjúkdómum í fólki. Fuglakólera er allsendis óskyld kóleru í fólki, sem bakterían Vibrio cholerae veldur.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    211 deilingar
    Share 84 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    46 deilingar
    Share 18 Tweet 12
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?