• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 22. ágúst 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Stuðningur við Úkraínu í brennidepli á utanríkisráðherrafundi Norðurlandanna og Kanada

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs, Anita Anand, utanríkisráðherra Kanada, Elina Valtonen, utanríkisráðherra Finnlands, Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, og Maria Malmer Stenergard, utanríkisráðherra Svíþjóðar.

Stuðningur við Úkraínu í brennidepli á utanríkisráðherrafundi Norðurlandanna og Kanada

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. ágúst 2025
in Erlent, Fréttir, Innlent
A A
0

Vaxandi  áskoranir á sviði öryggismála, áframhaldandi stuðningur við Úkraínu og málefni Mið-Austurlanda voru í brennidepli á árlegum sumarfundi utanríkisráðherra Norðurlandanna  sem lauk í Nuuksio, Finnlandi, í dag. Utanríkisráðherra Kanada var sérstakur gestur fundarins. 

„Mikill samhugur var  á fundinum  varðandi mikilvægi áframhaldandi stuðnings við Úkraínu og mun Ísland  ekki láta sitt eftir liggja í þeim efnum. Það þarf að tryggja réttlátan og varanlegan frið í Úkraínu sem byggist á traustum öryggistryggingum. Náið samstarf Evrópuríkjanna, Bandaríkjanna og Kanada er lykillinn að því að að þetta verði, því öryggi Úkraínu er órjúfanlegur hluti af öryggi alls Norður-Atlantshafssvæðisins,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. 

Í yfirlýsingu ráðherrafundarins fagna Norðurlöndin og Kanada þeim skrefum sem nú eru tekin í samstarfi við Bandaríkin til að stöðva blóðsúthellingarnar í Úkraínu og stríðsrekstur Rússlands. Ríkin muni áfram standa þétt við bakið á Úkraínu með samhæfðum varnartengdum stuðningi, endurreisnarstarfi og aðstoð við úkraínskt samfélag. Þess er krafist að Rússland skili þeim þúsundum barna sem hafa verið numin ólöglega á brott og flutt til Rússlands frá upphafi allsherjarinnrásarinnar í febrúar 2022. Þá er áréttað að ríkin muni viðhalda þvingunaraðgerðum, innleiða nýjar aðgerðir, og tryggja skilvirka framkvæmd þeirra.

Í umræðum um málefni Mið-Austurlanda áréttaði utanríkisráðherra að tveggja ríkja lausnin sé eina raunhæfa leiðin að friði milli Ísraela og Palestínumanna. Aðkallandi sé að ríki heims viðurkenni og raungeri sjálfsákvörðunarrétt Palestínumanna og sjálfstætt ríki Palestínu taki sér stöðu við hlið Ísraelsríkis. Núverandi ástand á Gaza geti ekki varað lengur, vopnahlé verði að komast á og neyðaraðstoð að berast óbreyttum borgurum, auk þess sem sleppa þarf öllum gíslum. Þá væru yfirlýsingar ísraelskra ráðamanna um frekari landtöku á Vesturbakkanum fullkomlega óviðunandi.

Einnig var á fundi ráðherranna fjallað um málefni norðurslóða og mikilvægi samstarfs ríkjanna í þeim efnum. Utanríkisráðherra átti jafnframt tvíhliða fund í Nuuksio með Espen Barth Eide utanríkisráðherra Noregs þar sem m.a. var rætt um alþjóðaviðskipti og stöðuna í Mið-Austurlöndum.

  • Utanríkisráðherrar Norðurlandanna. - mynd
  • Frá fundinum. - mynd
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. - mynd
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Ungur drengur lést úr malaríu á Landspítalanum

    163 deilingar
    Share 65 Tweet 41
  • Vegna leikskólastarfsmanns sem er grunaður um kynferðisbrot

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Hótel Vogur á Fellsströnd – vel búið sveitahótel á friðsælum stað

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Þjófnaður á hraðbanka

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Lögreglan lýsir eftir Atla Vikari Jónssyni, 32 ára

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?