• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

380 myndavélar þarf fyrir vegtolla á höfuðborgarsvæðinu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. september 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0
160 myndatökustaði og 380 myndavélar þarf fyrir vegtolla á höfuðborgarsvæðinu
160 myndatökustaði og 380 myndavélar þarf fyrir vegtolla á höfuðborgarsvæðinu
160 myndatökustaði og 380 myndavélar þarf fyrir vegtolla á höfuðborgarsvæðinu

FÍB hefur reiknað lauslega út að innheimta vegtolla á höfuðborgarsvæðinu kalli á myndatökuvélar á 160 gatnamótum stofnbrauta ef gjaldtakan á að verða sanngjörn og skilvirk.
Rætt hefur verið að bíleigendur borgi vegtolla í samræmi við akstur á stofnbrautunum. Vegna hinna fjölmörgu akstursleiða inn á stofnbrautirnar er ekki um annað að ræða en hafa vegtollamyndavélar við öll gatnamótin. Að öðrum kosti er hætt við að verulegt ójafnvægi verði í greiðslum vegfarenda, allt eftir því hvar þeir koma inn á stofnbrautirnar og fara út af þeim.

Sigurdur Ingi Jóhannsson samgönguráðherra vill innleiða veggjöld á Íslandi

Á gatnamótunum þurfa að vera minnst 2 vegtollamyndavélar til að ná umferð í báðar áttir. Á gatnamótum með margar akreinar þurfa að vera fleiri myndavélar. Alls má því gera ráð fyrir að minnst 380 myndavélar þurfi til að greina ferðir fyrir innheimtu vegtollanna. Á mörgum stöðum þyrfti að reisa slár yfir stofnbrautirnar til að koma myndavélunum fyrir þannig að þær geti lesið á bílnúmerin.
Myndavélar í Reykjavík
Upplýsingar liggja ekki fyrir um hver kostnaður gæti orðið af uppsetningu og rekstri vegtollakerfis af þessari stærðargráðu. Í þessu samhengi má þó líta til kostnaðar við uppsetningu og rekstur slíkra kerfa í Stokkhólmi, Gautaborg og London. Í þessum þremur borgum hafa vegtollar verið lagðir á akstur inn í miðborgirnar til að draga úr umferð þangað, en ekki allt stofnbrautakerfið.
Fjárfestingar- og rekstrarkostnaður vegtollakerfisins í kringum kjarna Stokkhólms fyrsta árið (2007-2008) í rekstri var um 200 milljónir evra eða um 27 milljarðar króna.
Árið 2013 var rekstrarkostnaður þrengslaskattkerfanna í Stokkhólmi og Gautaborg 24 milljónir evra eða ríflega 3,2 milljarðar íslenskra króna.
Frá apríl 2015 til mars 2016 var rekstrarkostnaður þrengslaskattkerfisins í kringum miðborg Lundúna 90,1 milljón punda, eða um 14 milljarðar króna. Heildartekjurnar í London voru 258,4 milljónir punda á sama tíma.  Reksturskostnaðurinn við Lundúnakerfið var því 35% af tekjunum. Á fyrsta ári innheimtunnar í Lundúnum, 2004, fóru 76% af tekjunum í rekstrarkostnað.
https://gamli.frettatiminn.is/2019/09/12/vegtollar-geta-ordid-400-thusund-kronur-a-hvern-bil/
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    209 deilingar
    Share 84 Tweet 52
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?