Í dag klukkan 17:00 vígir ráðherra nýtt kvennaúrræði Batahúss
Í dag klukkan 17:00 vígir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra nýtt kvennaúrræði Batahúss. Í lok janúar 2021 var opnað Batahús fyrir karlmenn og rekstur þessa síðustu tvö ár hefur gefið góða raun og því komin tími á að opna systurúrræði. Í húsinu verður konum sem eru að koma úr refsivist gefin kostur á að koma sér stað út í samfélagið í vernduðu og vinsamlegu umhverfi.
Stofnun Batahússins byggir á skýrslu sem starfshópur á vegum félagsmálaráðherra skilaði árið 2019. Þar var talin þörf á frekari úrræðum fyrir fanga eftir að afplánun lýkur.Tilgangurinn er að bjóða upp á húsaskjól gegn vægu verði. Þar verður þeim einnig boðið upp á aðstoð til að vinna gegn fíknivanda og endurteknum afbrotum.
„Við bjóðum upp á þessa þjónustu en það verður hver og einn að betra sig á sínum forsendum og svo framvegis. Það getur enginn betrað annan. Það þarf hver og einn að betra sig sjálfur. En með því að búa til þennan jarðveg þá vonumst við til þess að endurkomum í fangelsi fækki hjá þessum hópi,“ segir Agnar Bragason forstöðumaður Batahússins.
Félagið er frjáls félagasamtök og er ekki í atvinnurekstri.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með að hjálpa þeim sem hafa þurft að sæta réttargæslu við að afla sér fræðslu/menntunar til að auðvelda þeim aftur innkomu á vinnumarkað. Auk þess hyggst félagið reka húsnæði sem stendur þessum aðilum til boða á meðan þeir eru að fóta sig í samfélaginu að nýju.