• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 13. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Breytt fyrirkomulag krabbameinsskimana frá 1. janúar 2021

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. nóvember 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Breytingar verða á skipulagi, stjórn og framkvæmd skimunar fyrir krabbameinum um næstu áramót. Landspítali í samvinnu við Sjúkrahúsið á Akureyri tekur þá að sér framkvæmd skimunar fyrir krabbameinum í brjóstum og heilsugæslan um allt land framkvæmd skimunar fyrir krabbameinum í leghálsi. Leitarstöð Krabbameinsfélagsins hefur annast þetta verkefni um áratuga skeið og unnið mikilvægt brautryðjandastarf í baráttunni við krabbamein hér á landi.

Markmið breytinganna er að færa verklag nær því skipulagi sem mælt er með í alþjóðlegum skimunarleiðbeiningum til að tryggja enn frekar öryggi og gæði og er jafnframt í samræmi við framtíðarsýn og meginmarkmið heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Embætti landlæknis mun fara með stjórn hópleitarinnar og bera ábyrgð á henni, sinna gæðaeftirliti og halda skimunarskrá.

Landlæknir kynnti fyrir heilbrigðisráðherra í byrjun árs 2019 tillögur að framtíðarskipulagi krabbameinsskimana. Tillögurnar voru í samræmi við niðurstöður skimunarráðs og tillögur þess um að færa framkvæmd skimana inn í opinbera heilbrigðiskerfið. Heilbrigðisráðherra fól verkefnastjórn að útfæra tillögurnar og tók formlega ákvörðun um að hrinda breytingunum í framkvæmd 1. janúar 2021.

Áhersla verður lögð á að yfirfærsla verkefnisins frá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins til sjúkrahúsanna og heilsugæslunnar valdi sem minnstri röskun á þjónustu. Tímapantanir í skimun samkvæmt breyttu fyrirkomulagi hefjast í byrjun janúar.

Upplýsingar um framkvæmd skimana frá áramótum

Reglubundin skimun fyrir krabbameini í brjóstum og leghálsi er forvörn ætluð einkennalausum konum. Finni konur fyrir einkennum frá brjóstum eða kvenlíffærum er þeim ráðlagt að leita til læknis.

Samhæfingarstöð krabbameinsskimana

Sett hefur verið á fót Samhæfingarstöð krabbameinsskimana. Meðal verkefna hennar er að boða  konur í reglubundna skimun og veita upplýsingar um niðurstöður skimana. Samhæfingarstöðin heyrir undir Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins en starfar á landsvísu.

Skimun fyrir krabbameini í brjóstum

  • Tímapantanir: Frá 6. janúar 2021 geta konur pantað tíma í skimun hjá Samhæfingarstöð krabbameinsskimana sem tekur við öllum tímapöntunum vegna þessarar þjónustu.
  • Staðsetning þjónustu: Þjónustan verður áfram veitt í húsnæði Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð þar til á vormánuðum 2021 þegar hún flyst á Eiríksgötu 5. Við Sjúkrahúsið á Akureyri verður staðsetning þjónustunnar óbreytt.
  • Nánari upplýsingar um tímapantanir o.fl. eru á vef samhæfingar­miðstöðvarinnar.

Skimun fyrir leghálskrabbameini – landsbyggðin

  • Tímapantanir: Frá 4. janúar geta konur pantað tíma í skimun fyrir leghálskrabbameini á www.heilsuvera.is eða hjá heilsugæslustöðinni sinni.
  • Framkvæmdin: Fyrirkomulag skimana á landsbyggðinni verður óbreytt.

Skimun fyrir leghálskrabbameini – höfuðborgarsvæðið

  • Tímapantanir: Frá 4. janúar geta konur pantað tíma í skimun fyrir leghálskrabbameini á www.heilsuvera.is eða hjá heilsugæslustöðinni sinni.
  • Staðsetning þjónustu: Þjónustan verður veitt á öllum heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Sem fyrr geta konur sem það kjósa leitað til kvensjúkdómalæknis vegna sýnatöku.
  • Framkvæmd: Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar, sem hafa hlotið sérstaka þjálfun, munu annast sýnatöku, líkt og ljósmæður og hjúkrunarfræðingar hafa gert á heilsugæslustöðvunum á landsbyggðinni frá árinu 2015.
Umræða
Share2Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Verr farið með Ísland en Namibíu – Kvótakerfið til Mannréttindadómstólsins

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?