Hugleiðingar veðurfræðings
Í morgunsárið var djúp lægð við suðvestur Grænland og í dag nálgast hún okkur smám saman. Það verður því hægt vaxandi suðlæg átt á landinu fyrri parts dags og væta með köflum, en þurrt og bjart fyrir austan. Hlýnar í veðri. Síðdegis ganga skil frá lægðinni inn yfir landið, þá bætir í vind og úrkomu og í kvöld má búast við allhvassri sunnanátt með talsverðri rigningu sunnan- og vestanlands.
Það bætir enn frekar í vind í nótt, og í fyrramálið er útlit fyrir sunnan hvassviðri eða storm með áframhaldandi rigningu og hlýju veðri, en eftir hádegi á morgun verður vindur suðvestlægari og það kólnar með skúrum eða éljum. Á norðaustanverðu landinu verður úrkoma þó lítil sem engin. Á miðvikudag dregur svo hægt og bítandi úr vindi, en áfram má búast við skúrum eða éljum á vestanverðu landinu.
Suðurland
Suðvestan hvassviðri og él (Gult ástand)
21 nóv. kl. 14:00 – 22 nóv. kl. 02:00
Suðvestan hvassviðri, 15-20 m/s. Búast má við talsverðum éljagangi með skafrenningi og takmörkuðu eða lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum, einkum inntil landsins og til fjalla.
Faxaflói
Suðvestan hvassviðri og él (Gult ástand)
21 nóv. kl. 13:00 – 22:00
Suðvestan hvassviðri, 15-20 m/s. Búast má við talsverðum éljagangi með skafrenningi og takmörkuðu eða lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum, einkum inntil landsins og til fjalla.
Breiðafjörður
Suðvestan hvassviðri og él (Gult ástand)
21 nóv. kl. 13:00 – 20:00
Suðvestan hvassviðri, 15-20 m/s. Búast má við talsverðum éljagangi með skafrenningi og takmörkuðu eða lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum, einkum til fjalla. Afmarkaðar samgöngutruflanir eru…
Vestfirðir
Suðvestan hvassviðri eða stormur og él (Gult ástand)
21 nóv. kl. 13:00 – 18:00
Suðvestan hvassviðri eða stormur, 18-23 m/s. Búast má við talsverðum éljagangi með skafrenningi og takmörkuðu eða lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum, einkum til fjalla.
Strandir og Norðurland vestra
Sunnan hvassviðri eða stormur (Gult ástand)
20 nóv. kl. 21:00 – 21 nóv. kl. 11:00
Sunnan hvassviðri eða stormur, 18-23 m/s. Búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll, yfir 30 m/s, einkum austantil. Aðstæður geta verið varhugaverðar fyrir vegfarendur með aftanívagna eða á…
Suðvestan hvassviðri og él (Gult ástand)
21 nóv. kl. 13:00 – 22 nóv. kl. 03:00
Suðvestan hvassviðri, 13-18 m/s. Búast má við talsverðum éljagangi með skafrenningi og takmörkuðu eða lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum, einkum til fjalla. Afmarkaðar samgöngutruflanir eru…
Norðurland eystra
Sunnan hvassviðri eða stormur (Gult ástand)
21 nóv. kl. 02:00 – 11:00
Sunnan hvassviðri eða stormur, 18-23 m/s vestantil á svæðinu. Búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll, yfir 30 m/s. Aðstæður geta verið varhugaverðar fyrir vegfarendur með aftanívagna eða á…
Veðurhorfur á landinu
Sunnan 5-13 m/s og væta með köflum, en léttskýjað um landið austanvert. Bætir í vind síðdegis, sunnan 10-18 í kvöld og rigning, talsverð úrkoma sunnanlands. Hlýnar smám saman, hiti 3 til 9 stig í kvöld.
Sunnan 15-23 m/s í fyrramálið og rigning, en þurrt að kalla um landið norðaustanvert. Hiti 6 til 12 stig. Vestlægari eftir hádegi með skúrum eða éljum og kólnandi veðri, en léttir til á Austurlandi.
Spá gerð: 20.11.2023 10:50. Gildir til: 22.11.2023 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Vestan og suðvestan 13-20 m/s, hvassast suðvestantil. Dregur smám saman úr vindi síðdegis. Víða él, en yfirleitt þurrt austanlands. Hiti 0 til 4 stig.
Á fimmtudag:
Norðlæg átt, 3-10 m/s og að mestu léttskýjað, en norðvestan 10-18 norðaustantil og dálítil él þar framan af degi. Frost 0 til 8 stig.
Á föstudag og laugardag:
Breytileg átt, 3-8 m/s og bjart með köflum. Hægt hlýnandi.
Á sunnudag:
Útlit fyrir suðlæga átt og bjartviðri, en að mestu skýjað sunnan- og vestanlands.
Spá gerð: 20.11.2023 08:45. Gildir til: 27.11.2023 12:00.