Það mátti skilja Smára McCarthy, alþingismann Pírata svo, á ráðstefnu Alþjóðamálastofnunar HÍ og fleiri aðila í Norræna Húsinu í gær um ESB og tengd efni, að ekki ætti að nota orðin efasemdarmenn um ESB um andstæðinga aðildar heldur væru hér á ferð einangrunarsinnar.
Þessi hugsun er ekki sköpunarverk þingmannsins. Hún hefur heyrzt áður.
En hverjir eru þessir „einangrunarsinnar“, sem þingmaðurinn vill nefna svo, en í því felst að þar sé á ferð hópur manna, sem vilji eiga sem minnst samskipti við aðrar þjóðir.
Stór hópur þeirra, sem skipa lið andstæðinga aðildar að ESB eru sjálfstæðismenn. Hver er ferill Sjálfstæðisflokksins í samskiptum við aðrar þjóðir?
Sá flokkur var í forystu fyrir þeim þjóðfélagsöflum, sem vildu skera endanlega á tengslin við Danmörku og stofna lýðveldi á Íslandi 1944. Efasemdarmenn þeirra tíma um stofnun lýðveldis voru jafnaðarmenn eins og ítarlega er rakið í sögu Alþýðuflokksins í 100 ár eftir Guðjón Friðriksson, sagnfræðing.
Það voru sjálfstæðismenn, sem ásamt Framsóknarflokki og Alþýðuflokki mótuðu utanríkisstefnu hins nýja lýðveldis.
Í því fólst aðild að Sameinuðu þjóðunum, þátttaka í norrænu samstarfi sem sjálfstæð og fullvalda þjóð, þátttaka í starfi þeirra fjölþjóðlegu stofnana, sem urðu til í Evrópu eftir lok heimsstyrjaldarinnar síðari, aðild að varnarsamstarfi frjálsra þjóða í okkar heimshluta, þ.e. Atlantshafsbandalaginu og gerð varnarsamnings við Bandaríkin á víðsjárverðum tímum til þess að tryggja öryggi lýðveldisins.
Sósíalistar stóðu fast með lýðveldisstofnun en jafn hart gegn þátttöku í þessu alþjóðasamstarfi vegna þess að þeir trúðu á Sovétríkin. Allir þekkja hvernig þeirri sögu lauk.
Geta þau þjóðfélagsöfl, sem stóðu fyrir framangreindri þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi talizt „einangrunarsinnar“?
Af hverju er Sjálfstæðisflokkurinn andvígur aðild að ESB og það sama á raunar við um Framsóknarflokkinn, VG og Miðflokkinn?
Vegna þess að þar með afsalar þjóðin sér sjálfstæði sínu, sem að vísu eru fordæmi um í okkar sögu að við höfum gert.
Eru þeir sem vilja halda sjálfstæði íslenzku þjóðarinnar „einangrunarsinnar“ að mati Pírata?
Segir Styrmir Gunnarsson, f.v. ritstjóri Morgunblaðisins.