Mótmæli gegn ríkisstjórninni á Austurvelli í dag, þriðjudag, klukkan þrjú
Mótmæli verða á Austurvelli klukkan þrjú en þingfundur verður í gangi á sama tíma og því verða flestir þingmenn og allir ráðherrar að öllum líkindum á svæðinu.
Þingheimur mun að öllum líkindum ekki komast hjá því að heyra mótmæli fólks vegna þeirrar stöðu sem að uppi er og hefur verið í langan tíma. Þar sem að það má búast við að mikið af fólki safnist saman og mótmæli aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar og viljaleysi hennar til þess að semja við ljósmæður.
Á sama tímabili og hratt og greiðlega hefur gengið að hækka laun sumra stétta í stjórnunarstöðum hjá ríkinu með allt að 100% hækkunum á launum og í mörgum tilfellum hefur verið um að ræða hækkanir upp á milljón á mánuði og jafnvel milljónir. Það hefur valdið mikilli gremju í þóðfélaginu almennt og m.a. hafa launþegasamtök lýst yfir stríði, opinberlega, við ríkisstjórnina í komandi kjaraviðræðum.
Ljósmæður segjast einungis mæta hroka og yfirlæti af hálfu ríkisstjórnarinnar og tómlæti þegar að kemur að því að ræða við þær. Í marga mánuði hefur forsætisráðherrann Katrín Jakobsdóttir ekki látið ná í sig vegna málsins og ekki tjáð sig um það fyrr en um helgina. Þau svör sem að hún gaf þá, eftir að hafa verið með hausinn í sandinum um all langt skeið og forðast eins og heitan eldinn að tjá sig um málið.
Voru þess eðlis að þau ollu miklum vonbrigðum þeirra sem að treystu á að hinn vinstri sósíalíski formaður og forsætisráðherra væri síðasta hálmstráið til þess að ná vitrænni niðurstöðu í kjaradeilunni. Hún var í raun algerlega á bandi fjármálaráðherra um að alger ómöguleiki væri á að hækka laun ljósmæðra og að slík hækkun væri uppskrift að óstöðugleika svo fátt eitt sé nefnt.
M.a. lét Katrín eftirfarandi orð falla ,, Og ég er ansi hrædd um það, að ef við horfum á það sem sagan hefur kennt okkur í því þá eru svona samningar ekki gerðir í tómarúmi. Það er að segja að samningar við eina stétt hafa áhrif á samninga við aðrar stéttir.”
Á það hefur verið bent m.a. í grein hér fyrr í vikunni, þar sem að þeirri spurningu er velt upp, hvort að samningar sem að Kjararáð gerði við aðrar stéttir, hafi verið gerðir í tómarúmi? Jafnframt hvort að samningar við þær stéttir sem að Kjararáð samdi við, eigi þá ekki að hafa áhrif á aðrar stéttir? Forsætisráðherra hefur sagt það sjálf í ríkisútvarpi allra landsmanna að svo eigi að vera, ef ekki, þá virðast orð forsætisráðherrans marklaus.
Mótmælendur ætla að mæta með dúkkur og bangsa til að setja á tröppur Alþingishússins til að tákna þau barnslíf sem að ríkisstjórnin er að leggja í hættu með þessari atlögu gegn heilbrigðiskerfinu. Sem er sama heilbrigðiskerfið og stjórnarandstæðingurinn Katrín Jakobsdóttir sagði að þyrfti að standa vörð um og halda fjármögnuðu.
Núna er helst í umræðunni að líklega verði sett lög á ljósmæður til þess að hamla verkfallsrétti þeirra og kúga þær þannig með nauðung, til samninga sem að þær hafa marg oft lýst yfir að séu algerlega óboðlegir.
Gefum mótmælendum orðið:
,,Ríkisstjórnin, auk um 400 annara ríkisstarfsmanna, þáði nýverið glórulausa launahækkun kjararáðs án nokkurra mótmæla – en talar nú gegn sjálfsögðum kröfum ljósmæðra!
Ríkisstjórn á, samkvæmt henni “góðæristímum”, undir forystu Vinstri grænna – sem lengi hefur talar fyrir bættum kjörum kvennastétta – niðurlægir og nauðbeygir ljósmæður með kulda og yfirlæti.
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar og VG undir forystu VG ÞVERNEITAR að verða við þeim SJÁLFSÖGÐU kröfum sem að stéttin, sem aðeins telur rúmlega 270 konur, fer fram á!
Ríkisstjórnin ber EIN ábyrgð á því neyðarástandi sem að skapast hefur á fæðingardeild Landspítalans.
Ríkisstjórnin ber EIN ábyrgð á því að í kjölfarið eru mannslíf beinlínis í hættu og lífi yngstu borgarar landsins, nýfæddra og ófæddra barna teflt á tæpasta vað.
Þessi forkastanlega og ófyrirgefanlega framganga ríkisstjórnarinnar gagnvart þessari mikilvægu kvennastétt verður EKKI liðin lengur!
Ríkisstjórnin skal nú gera sér grein fyrir því að öll spjót standa að henni og að ábyrgðin er hennar ef að eitthvað fer úrskeiðis á Landspítalanum – og ríkisstjórnin skal gera sér grein fyrir því að það er hennar að mæta kröfum ljósmæðra NÚNA STRAX!
Við bíðum ekki lengur og munum láta heyra VEL í okkur fyrir utan Alþingishúsið á þriðjudaginn kemur!
Við ætlum að fjölmenna og við ætlum EKKI að gefast upp! Þegar að um er að ræða mannslíf og þá sér í lagi líf barna kemur það ekki til greina! “
https://gamli.frettatiminn.is/2018/07/03/ekki-haegt-ad-semja-vid-ljosmaedur-laun-rikisforstjora-haekkud-um-65-105/
https://gamli.frettatiminn.is/2018/07/04/48-rikisforstjorar-fa-launahaekkun-fra-kjararadi/
https://gamli.frettatiminn.is/2018/04/12/thingmenn-fa-45-haekkun-vinstri-stjornin-lysir-yfir-omoguleika-launahaekkun-ljosmaedra/
https://gamli.frettatiminn.is/2018/04/11/omoguleiki-ad-haekka-laun-ljosmaedra-myndi-setja-fordaemi-kjaravidraedum/
https://gamli.frettatiminn.is/2018/03/20/puttinn-framan-launafolk-forstjorar-med-84-102-6-milljonir-ari/
https://gamli.frettatiminn.is/2018/03/16/forstjori-n1-84-milljonir-arslaun-vr-vill-ad-starfsfolk-n1-fai-forstjorahaekkun/