Icelandic Wildlife Fund og Landssamband veiðifélaga setja upp skilti í Leifsstöð
Icelandic Wildlife Fund og Landssamband veiðifélaga hafa sett upp þetta skiliti í innritunarsal Leifsstöðvar til að vekja athygli á þeirri baráttu sem nú stendur yfir fyrir verndun íslenskra laxastofna.
Í tilkynningu frá þeim kemur fram að Ísland sé síðasta vígi villta Atlantshafslaxins.
,,Tegundin er nánast útdauð víða í Evrópu, þar sem áður gekk upp feikilegur fjöldi af laxi upp ár. Íslenskir laxastofnar eru einstakir og þeim stendur mikil ógn af eldislaxi sem sleppur úr sjókvíum.
Skiltið er í innritunarsal flugstöðvarinnar, á horninu þar sem innrituðum farangri er skilað. Þið getið lagt ykkar lið við þessa mikilvægu baráttu með því að taka mynd af skiltinu og deila á samfélagsmiðlum.“
Umræða