Í kvöld er útlit fyrir hvassviðri með vætu um vestanvert landið og á Miðhálendinu. Hviður geta hæglega farið yfir 30 m/s við fjöll og nálægt 40 m/s á norðanverðu hálendinu.
Þetta er varasamt veður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind og létta tengivagna, svo og útivistarfólk og tjaldbúa sem hyggja á dvöl á hálendinu. Jafnframt er hætta á foktjóni á Suðurlandi, Faxaflóa og Snæfellsnesi ef ekki er gengið vel frá hlutunum.
Núna í morgunsárið liggur lægð við Hvarf og sendir hún okkur veik skil upp úr hádegi með vaxandi suðlægri átt og vætu um V-vert landið í dag. Í kvöld koma önnur skil frá henni og eru þau öllu hraustlegri, en spáð er stífri sunnan- og suðaustanátt með þeim og rigningu, þar af talsverðri rigningu S- og SA-til í nótt og í fyrramálið (föstudag). Hviður við fjöll geta farið upp í 30 m/s og jafnvel 40 m/s á hálendinu. Gular viðvaranir eru í gildi og er fólki bent á þær. Það er ekki útlit fyrir að þessi lægð slái nein met en hún getur engu að síður haft áhrif ef aðgát er ekki höfð, t.d. hjá tjaldferðalöngum, bílum með aftanívagna og fólki með trampólín og laus garðhúsgögn í nærumhverfi sínu.
Í nótt frysti víða á landinu, enda hægur vindur og víða léttskýjað. Næstu nótt er ekki útlit fyrir að hiti fari undir frostmark, en með lækkandi sólu má eðlilega gera ráð fyrir að þetta gerist aftur og aftur á næstu vikum enda ekki mikið eftir af sumrinu.
Á morgun og á laugardag stefnir í suðvestan strekking og skúri eða rigningu S- og V-lands, en annars hægari vind og bjartara veður.