• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 10. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Lög samþykkt sem auka réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda og bæta upplýsingar um leigumarkaðinn

Mynd: STJR. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra

Hreinsun og uppsagnir í Mennta- og barnamálaráðuneytinu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
21. janúar 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Mennta- og barnamálaráðherra hefur innleitt nýtt skipurit og verklag í kjölfar mats á hlutverki og verkefnum ráðuneytisins. Markmið breytinganna er að styrkja faglega stjórnsýslu, skýra ábyrgð og umboð, bæta ákvarðanatöku og tryggja að ráðuneytið sé enn betur í stakk búið til að sinna lögbundnu hlutverki sínu á sviði mennta- og barnamála. Breytingarnar fela í sér endurskipulagningu skrifstofa og breytta verkaskiptingu.

Með þeim á að skýra ábyrgð og auka gagnsæi um leið. Dregið verður úr yfirbyggingu um leið og fagleg sérþekking og sérhæfing innan málaflokka er styrkt. Áfram verður vel stutt við samhæfingu barna- og menntamála.

„Með breytingunum nú viljum við einfalda verklag og gera það skilvirkara. Við viljum lyfta upp menntamálum og setja aukinn slagkraft í málefni barna í viðkvæmri stöðu. Það er mikilvægt að nýta þá miklu sérþekkingu sem til staðar er í ráðuneytinu og stytta boðleiðir sem ég tel að nýtt skipurit muni gera. Ætlunin er að sigla umbótum hratt og vel í höfn, barnanna vegna,“ segir Inga Sæland, nýr mennta- og barnamálaráðherra.

Með nýju skipulagi er megináhersla lögð á fagskrifstofur sem bera heildstæða ábyrgð á stefnumótun, greiningu, lagavinnu, innleiðingu, mati og eftirfylgni innan síns málaflokks. Þær eru þrjár talsins með tveimur stoðskrifstofum þeim til stuðnings:

Nýtt skipurit mennta- og barnamálaráðuneytisins

Skrifstofa ráðuneytisstjóra er lögð niður, með það að markmiði að draga úr yfirbyggingu um leið og fagleg og framkvæmdaleg ábyrgð er færð nær málaflokkunum sjálfum. Um leið er ætlunin að styrkja hlutverk ráðuneytisstjóra sem yfirstjórnanda, samhæfingar- og ábyrgðaraðila. Jafnframt verði sérstök teymi, fimm talsins, teymisstjórar og teymisstjórnir lögð niður.

Þótt horfið sé frá þverfaglegu skipuriti er ekki vikið frá markmiðum um samstarf og samþættingu sem er afar mikilvægt þegar kemur að menntamálum og farsæld barna. Samhliða nýju skipulagi verður innleitt vinnufyrirkomulag sem byggir á sprettum. Þar vinnur starfsfólk úr ólíkum fagskrifstofum saman að afmörkuðum verkefnum, áhersla er lögð á lausnamiðaða nálgun, hraða endurgjöf og skýr markmið. Þverfagleg samvinna verður því verkefnamiðuð en ekki grundvallarform skipuritsins.

Breytingarnar leiða óhjákvæmilega til þess að ákveðin störf leggjast niður og hefur sex starfsmönnum verið sagt upp. Um leið er mætt þeirri hagræðingarkröfu sem gerð er á árinu 2026 til rekstrar ráðuneytisins.

Breytingarnar taka þegar gildi og eftirfarandi aðilar hafa verið fluttir í embætti skrifstofustjóra á nýjum skrifstofum:

  • Skrifstofustjóri fjármála og innri þjónustu er Ásgeir Runólfsson sem var áður skrifstofustjóri fjárlaga og rekstrar í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Hafþór Einarsson sem var skrifstofustjóri fjármála og rekstrar í mennta- og barnamálaráðuneytinu verður skrifstofustjóri fjárlaga og rekstrar í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu.
  • Skrifstofustjóri stjórnsýslu er Anna Tryggvadóttir sem var skrifstofustjóri stjórnsýslu, mats og eftirlits.
  • Skrifstofustjóri barnamála er Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir sem áður var skrifstofustjóri stefnumótunar og innleiðingar.
  • Auglýst verður eftir skrifstofustjóra skóla- og íþróttamála á næstu dögum. Björk Óttarsdóttir mun leiða starf skrifstofunnar þar til skrifstofustjóri hefur verið skipaður.
  • Auglýst verður eftir skrifstofustjóra framhaldsskóla og framhaldsfræðslu á næstu dögum. Ragnhildur Bolladóttir mun leiða starf skrifstofunnar þar til skrifstofustjóri hefur verið skipaður.
Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Bankaþrælar á Íslandi: Okurvextir, fjárhagslegt ofbeldi og áhrif þeirra á fjölskyldur

    Ó­lög­mæt eigna­upp­taka í gegnum verð­tryggingu eru 60 milljarðar síðustu þrjú ár

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • ,,Stanslaust klisju kjaftæði“

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Laus hundur veittist að barni

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ríkisstjórnin boðar hækkun á greiðslubyrði verðtryggðra lána neytenda

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • ,,Frekja, græðgi og yfirgangur – eigum við ekki að rísa upp gegn þessu?“

    129 deilingar
    Share 126 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?