Lilja Sigurlína Pálmadóttir og Baltasar Kormákur Baltasarsson eru skilin að borði og sæng. Mbl.is greindi frá því í dag og er þar sagt að ,,hjónin hafa verið áberandi síðan þau hnutu hvort um annað fyrir rúmum 20 árum; hún sem listamaður og hrossaræktandi og hann sem leikari og leikstjóri sem hefur náð hvað lengst á sínu sviði erlendis.
Nú sé komið að leiðarlokum þessa ferðalags þeirra sem hjón og halda þau hvort í sína áttina en að hjónin hafa búið saman í reisulegu húsi í miðbænum og líka í Skagafirði ásamt stórum barnahópi.“
Umræða