Í dag er útlit fyrir allhvassa eða hvassa norðaustan- og austanátt, en hægari vindur austanlands. Einnig ber að taka fram að stór hluti höfuðborgarsvæðisins verður í þokkalegu skjóli. Það snjóar allvíða á norðurhelmingi landsins, ýmist á formi élja eða samfelldari snjókomu. Sunnanlands má búast við slyddu eða snjókomu því úrkomubakki verður þar viðloðandi. Líklega sleppur Faxaflóasvæðið að mestu við úrkomu í dag. Hitinn verður kringum frostmark.
Á morgun (laugardag) er minnkandi norðanátt í kortunum með dálitlum éljum, en yfirleitt úrkomulaust sunnantil á landinu. Það kólnar smám saman í veðri.
Á sunnudag gera spár ráð fyrir að gangi í stífa vestan- og suðvestanátt með éljagangi, en þurrt og bjart veður um landið austanvert.
Veðurhorfur á landinu
Norðaustan og austan 13-20 m/s í dag, en hægari vindur austanlands. Snjókoma eða él um landið norðanvert, slydda eða snjókoma sunnanlands, en þurrt að mestu við Faxaflóa. Hiti kringum frostmark.
Norðlæg átt 8-13 á morgun og él, en þurrt sunnantil á landinu. Vægt frost. Lægir undir kvöld og kólnar meira.
Spá gerð: 21.02.2020 05:36. Gildir til: 22.02.2020 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag:
Suðvestan- og vestanátt, víða 8-15 og él, en bjartviðri um landið austanvert. Frost 0 til 6 stig.
Á mánudag:
Suðaustlæg átt, 3-13, hvassast við SV-ströndina. Snjókoma á Suður- og Vesturlandi, en annar skýjað og þurrt að kalla. Hlýnar lítið eitt.
Á þriðjudag:
Suðaustan 5-10 A-lands, en hægviðri V-til. Snjókoma SA-lands, en annars skýjað og stöku él. Frost 0 til 5 stig.
Á miðvikudag:
Gengur í norðaustan 10-18 með snjókoma NV-til, en annars suðvestlæg átt, 3-10 með éljum SV-lands, en bjart með köflum fyrir austan. Áfram frost um allt land.
Á fimmtudag:
Gengur í stífa norðaustanátt með snjókomu en slyddu syðst, en hægari og úrkomulítið NA-lands. Frost 1 til 5 stig, en frostlaust syðst.
Spá gerð: 21.02.2020 08:20. Gildir til: 28.02.2020 12:00.