Fundurinn leystist upp í hörð mótmæli sem virtist koma flatt upp á embættismenn
Á fréttamiðlinum Grafarvogur.net er fjallað um harðan íbúafund þar sem allt fór í háaloft á fundinum í Borgum síðdegis um þéttingu byggðar í Grafarvogi. Eftirfarandi er frétt og myndir sem fréttamiðillinn Grafarvogur.net birti:

Þetta fyrirkomulag varð til þess að allt fór í háaloft því embættismenn borgarinnar voru ekki á þeim buxunum að gefa eftir og breyta fyrirkomulagi fundarins. Í mikilli reiði var púað og meðal annars spurt: Til hvers haldið þið að við séum komin hingað? Í raun voru fundarmenn mættir til að mómæla tillögunum í heilu lagi og senda skýr skilaboð til borgaryfirvalda.
Embættismenn höfðu hugsað fundinn sem almennan kynningarfund og að fundarmenn skiptu sér síðan niður á nokkra skjái sem voru dreifðir um salinn og að þar myndu fundarmenn spyrja betur um sitt hverfi. Miðað við aðsóknina á fundinn var þetta fyrirkomulag illmögulegt. Og á margan hátt sérstakt og að halda að mikill hitafundur gæti breyst í einhvers konar pælingar í rólegheitunum um einstaka reiti í hverfinu líkt og verið væri að skoða og spekúlera í málverkum í rólegheitum á málverkasýningu.
MIKIL REIÐI Á FUNDINUM
Fundarmenn voru hins vegar mættir til að spyrja og fá svör við til dæmis áætlunum um umferðarþunga í framtíðinni, rannsóknir og áætlanir um hjóð og hávaða út frá umferðinni, hversu mikið álag yrði á innviði og við hvað væri stuðst þegar kæmi að þéttingu byggðarinnar.
Einhverjir höfðu á orði að fundargestir hefðu átt að mótmæla fyrirkomulagi fundarins með fótunum og ganga út – allir sem einn – þegar þeir áttuðu sig á hvernig fundurinn var hugsaður af embættismönnum borgarinnar.
Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður og íbúi í Grafarvogi, bað um orðið þegar ljóst var að fundurinn væri í þann mund að leysast upp. Fundarstjóri var alls ekki á því en gaf síðan eftir.
Guðlaugur Þór spurði salinn hversu margir styddu þær tillögur sem hefðu verið kynntar á fundinum. Skyndilega varð þetta að óformlegri atkvæðagreiðslu. Þrír réttu upp hönd og studdu tillögurnar reyndust tveir þeirra ekki búa í Grafarvogi. Klappað var fyrir þessari niðurstöðu!
Salurinn var á því að það ætti að fella þessar tillögur í einu og öllu og virða græn svæði og það andrými sem væri í Grafarvogi – auk þess sem það væri að koma aftan að íbúum að leggja fram drög að breyttu aðalskipulagi í svo grónu hverfi .
Alexandra Briem borgarfulltrúi sté þá fram og bað fundarstjóra um orðið og sagði að það kæmi sér á óvart hvernig andinn væri á fundinum og þessi mikla andstaða sem birtist henni. Hún spurði salinn hvort hann vildi engin ný hús á neinum reitum og salurinn svaraði að bragði að hann vildi hafa byggðina óbreytta.
Alexandra sagði síðan: „Það verður tekið fullt tillit til þess sem þið eruð að segja og biðja um!“
Þá vakti sú setning mikla athygli þegar arkitekt borgarinnar, sem kynnti tillögurnar, að gert væri ráð fyrir að einn bíll væri hugsaður á hverja íbúð í Grafarvogi eins og í borginni allri. Það fór ekki vel í mannskapinn að yfirfæra ætti miðbæjarfyrirkomulagið og vitleysuna þar yfir á úthverfin.
Eftir þetta yfirgáfu flestir fundinn en ýmsir nýttu tækifærið og spurðu nánar um þær tillögur sem lagðar voru fram.

Þetta reyndist erfiður fundur fyrir fundarstjórann. Hann missti öll tök á fundinum.

Þetta var mikill hitafundur og hér fékk einn fundarmanna, arkitekt, orðið eftir japl, jaml og fuður.

Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður fékk orðið eftir nokkra eftirgangssemi. Hann spurði: Hverjir styðja þessar tillögur og þrír réttu upp hönd. Troðfullur salurinn vildi fella allar þær tillögur sem voru lagðar fram.

Alexandra Briem borgarfulltrúi bað um orðið og sagðist undrandi á þeirri miklu fyrirstöðu sem væri við tillögurnar og sagði síðan: „Það verður tekið fullt tillit til þess sem þið eruð að segja og biðja um!“