Veðurhorfur á landinu
Suðvestan 10-18 m/s og víða él í fyrstu, dregur síðan úr vindi og éljum og lengst af bjartviðri á Austurlandi. Snýst í norðaustan 8-15 með snjókomu eða slyddu í kvöld, en hægari og él norðvestantil.
Norðan og norðvestan 15-23 m/s og snjókoma á austurhelmingi landsins í nótt og fyrramálið, en hægari vestanátt og él vestantil. Dregur úr vindi á morgun, vestan og norðvestan 5-15 síðdegis og él í flestum landshlutum. Frost víða 0 til 5 stig, en frostlaust við suður- og austurströndina. Spá gerð: 21.03.2026 09:26. Gildir til: 23.03.2026 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á mánudag:
Gengur í austan 15-23 m/s með snjókomu, fyrst á sunnanverðu landinu og frosti 0 til 5 stig. Rigning eða slydda með suðurströndinni seinnipartinn og hiti yfir frostmarki þar.
Á þriðjudag:
Norðan 13-20 m/s og snjókoma með köflum, en hægara og úrkomulítið sunnantil á landinu. Frost 2 til 7 stig.
Á miðvikudag:
Norðvestanstrekkingur norðaustanlands, en annars mun hægari vestlæg átt, víða él og talsvert frost.
Á fimmtudag:
Gengur í allhvassa eða hvassa suðaustanátt með snjókomu eða slyddu, síðar rigning við suður- og vesturströndina og hlýnar í veðri.
Á föstudag:
Útlit fyrir suðvestlæga átt með slyddu- eða snjóéljum og hita nærri frostmarki.
Spá gerð: 21.03.2026 07:57. Gildir til: 28.03.2026 12:00.

