• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 23. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Jóhannes Stefánsson, f.v. starfsmaður Samherja í Namibíu hlýtur verðlaun fyrir baráttu gegn spillingu

Jóhannes hefur fullyrt að hann sé fórnarlamb manndrápstilraunar sem átti sér stað í Höfðaborg í Suður-Afríku snemma árs 2017 - Ítalski saksóknarinn Gratteri og aðgerðarsinninn Lawal voru einnig tilnefndir

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
21. apríl 2021
in Erlent, Fréttir, Innlent
A A
0

 

Jóhannes Stefánsson, fyrrum starfsmaður Samherja í Namibíu og uppljóstari hlýtur WIN WIN sjálfbærniverðlaun Gautaborgar 2021. Þema verðlaunanna í ár er barátta gegn spillingu.

Í rökstuðning dómnefndar segir: 

„Á árunum 2011 til 2016 gegndi Jóhannes Stefánsson stjórnunarstöðu hjá íslenska sjávarútvegsfyrirtækinu Samherja. Eftir einhvern tíma varð það Jóhannesi ljóst að fyrirtækið viðhafði spillingu við störf í tengslum við fiskkvóta í Namibíu. Með þúsundir gagna á tölvunni sinni, sagði hann upp stöðu sinni í mótmælaskyni. 2019 birti WikiLeaks upphafið á „The Fishrot Files”, uppljóstrun sem hristi upp í viðskiptafrömuðum og stjórnmálaelítu. Þrátt fyrir að Jóhannes hafi verið áreittur, honum ógnað og eitrað, sýndi hann að einstaklingurinn getur barist gegn spillingu í fyrirtækjaheiminum.“ Fréttastofa ríkisútvarpsins greindi frá málinu og þar segir jafnframt:

Kærður vegna fullyrðingar um manndrápstilraun

Jóhannes hefur fullyrt að hann sé fórnarlamb manndrápstilraunar sem átti sér stað í Höfðaborg í Suður-Afríku snemma árs 2017 og að vinnuveitandi hans hafi haft fulla vitneskju um hana. Hann hóf fjársöfnun til þess að mæta kostnaði af heilsubresti vegna hennar.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, kærði Jóhannes í mars til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir rangar sakargiftir vegna fullyrðinga sinna um tilraun til manndráps og frelsissviptingar þar sem hann kunni að hafa gefið í skyn að forstjóri Samherja hafi á einhvern hátt tengst meintri eitrun og tilraunum til að nema hann á brott.

Ítalski saksóknarinn Gratteri og aðgerðarsinninn Lawal einnig tilnefndir

Verðlaunaféð er um 15 milljónir, 1 milljón sænskra króna og verða veitt í október. Verðlaunin hafa verið veitt í Gautaborg síðan 2000. Einnig voru tilnefndir, Nicola Gratteri, ítalskur saksóknari sem hefur saksótt  um 350 manns vegna tengsla við glæpasamtökin Ndrangheta á Suður-Ítalíu, Hamzat Lawal, aðgerðarsinni frá Nígeríu sem stofnaði samtökin Connected Development og Follow the Money sem berjast gegn spillingu er varða opinber útgjöld í Nígeríu, samtökin Integrity Watch í Afgansitan og International Consortium of Investigative Journalists.

Umræða
Share19Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Djúp og kröpp lægð og önnur á leiðinni

    Djúp og kröpp lægð og önnur á leiðinni

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • Grunur um brot gegn barni á leikskóla í Garðabæ og í fleiri leikskólum

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Veðurviðvörun á Tenerife, stormur og snjór – vinsælum ferðamannastað lokað

    65 deilingar
    Share 26 Tweet 16
  • Verð á eldsneyti lækkar

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Lágt verð á krónu er stærsta kjaraskerðingin

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?