• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 18. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

Vernd hafsvæða í íslenskri lögsögu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
21. ágúst 2024
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Stýrihópur sem settur var á laggirnar til að skilgreina áherslur Íslands um vernd hafsvæða í íslenskri lögsögu hefur skilað lokaskýrslu til Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra.

Áherslur Íslands taka m.a. hliðsjón af markmiðum Samnings Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni en í skýrslunni eru lagðar fram tillögur um áherslur í starfi stjórnvalda og hvaða svæði geta talist til verndarsvæða í hafi með hliðsjón af núverandi stjórnun verndunar og nýtingar.

Stýrihópurinn telur að í ljósi stöðu þekkingar á vistkerfum hafsins sé talsverð áskorun að ná markmiði um verndun 30% efnahagslögsögu Íslands fyrir árið 2030 í skilningi stefnu samningsins um líffræðilega fjölbreytni. Hins vegar sé raunhæft að stíga strax skref byggð á þeirri þekkingu og því stjórnkerfi sem er til staðar og skilgreina hvernig unnið verði að þessu markmiði á næstu árum.

Að beiðni stýrihópsins vann Hafrannsóknastofnun einnig viðauka við skýrsluna sem inniheldur mat á núverandi reglugerðum. Matið er unnið með tilliti til annarrar virkrar svæðisverndar sem niðurstöður um útnefningu slíkra svæða byggja á.

„Verndarsvæði í hafi gegna mikilvægu hlutverki í að tryggja verndun líffræðilegrar fjölbreytni, sem er grunnforsenda sjálfbærrar nýtingar auðlinda hafsins. Þessi skýrsla er lykilskjal í að varpa ljósi á stöðu Íslands gagnvart alþjóðlegum skuldbindingum í þessu samhengi“ sagði matvælaráðherra. „Við höfum þegar stigið mikilvægt skref með því að ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu mína um að hefja þegar í stað vinnu við mótun heildstæðrar stefnu fyrir hafið sem verði í samræmi við tillögur skýrslunnar“.
Í skýrslunni er m.a. lagt til að á komandi árum verði lögð áhersla á verndun sérstæðra og viðkvæmra vistkerfa í hafi. Kortleggja þurfi svæði með hátt verndargildi og samhliða vinna skipulega að rannsóknum á þeim svæðum þar sem líklegt þykir að slík vistkerfi finnist.

Einnig er lagt til að koma á verndun hafsvæða utan meginveiðisvæða á grundvelli varúðarnálgunar þannig að leyfi til nýtingar grundvallist almennt á að framkvæmdar séu áður rannsóknir innan svæðanna. Jafnframt að uppfæra stefnu í málefnum hafsins og hefja skilgreiningu svæðisbundins skipulags innan efnahagslögsögu.

Að auki eru lagðar fram tillögur um þverfaglega samvinnu innlendra stofnana.

Skýrsluna má nálgast hér.

Viðauka Hafrannsóknastofnunar má nálgast hér.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    89 deilingar
    Share 36 Tweet 22
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    185 deilingar
    Share 74 Tweet 46
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    132 deilingar
    Share 53 Tweet 33
  • Innflytjendur kosta hundrað milljarða á ári – Opin landamæri Schengen

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?