• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 14. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Andvana fædd börn eftir 22. viku fái kennitölu til að tryggja réttindi foreldra

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
21. október 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, mælti á Alþingi í dag fyrir breytingu á lögum um skráningu einstaklinga. Í frumvarpinu er veitt heimild til að gefa út kennitölur til andvana fædda barna sem fæðast eftir 22. viku meðgöngu. Með breytingunni öðlast foreldrar þessara barna tiltekin mikilvæg réttindi, svo sem til fæðingarorlofs. Þar af leiðandi er nauðsynlegt að halda skrá um þessa einstaklinga en einnig í þágu heilbrigðisvísinda.

Þær kennitölur sem úthlutað verður í þessum tilvikum eru svokallaðar kerfiskennitölur en þær verða aðgreindar frá hefðbundnum kennitölum í kerfum þjóðskrár og notaðar af opinberum stofnunum til að veita tiltekna þjónustu. Fjallað er um kerfiskennitölur í lögum um skráningu einstaklinga, sem tóku gildi um síðustu áramót, en ákvæði um kerfiskennitölur áttu að taka gildi um næstu áramót. Í frumvarpinu er lagt til að gildistöku ákvæðis um kerfiskennitölur verði frestað til 1. maí 2021 til að veita stofnunum ríkisins og atvinnulífinu tækifæri til að aðlagast þessum breytingum.

Samkvæmt ákvæði um kerfiskennitölur geta erlendir ríkisborgarar, sem uppfylla ekki skilyrði til að fá hefðbundna kennitölu, fengið útgefna kerfiskennitölu vegna sérstakra hagsmuna hér á landi. Þessar kerfiskennitölur eru notaðar af opinberum stofnunum t.d. ef þessir einstaklingar þurfa að greiða skatt, nýta læknisþjónustu o.fl., án þess að einstaklingarnir öðlist réttindi hér á landi.

Loks er í frumvarpinu lagt til að fresta gildistöku ákvæðis um að bannað verði að miðla þjóðskránni í heild sinni nema í undantekningartilvikum til 1. júní 2022. Ákvæðið átti að taka gildi næstu áramót en þar sem fyrirséð er að þjóðskrárkerfið verði ekki tilbúið tæknilega fyrir þetta bann um næstu áramót er lagt til að fresta gildistöku ákvæðisins. 

  • Frumvarp um breytingu á skráningu einstaklinga
  • Lög um skráningu einstaklinga nr. 140/2019
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Ekkert ferðaveður og allt að 35 m/s

    Ekkert ferðaveður og allt að 35 m/s

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Næsta lægð er væntanleg

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Hæstu okurvextir í heimi – ,,Það er eitthvað að fólki“

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Tveir milljarðar í félagsþjónustu vegna hælisleitenda í Hafnarfirði

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Fjöldi umsækjenda um tvö embætti skrifstofustjóra

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?