• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 21. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ríkið afli tekna og auki velferð

Aldursviðbót gildir ævilangt og almennt frítekjumark ellilífeyris hækkar samkvæmt frumvarpi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
21. nóvember 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, mælti í gær fyrir frumvarpi á Alþingi sem felur í sér að öryrkjum verði tryggð ævilöng aldursviðbót og að almennt frítekjumark ellilífeyrishækki.

„Hækkun almenns frítekjumarks ellilífeyrisþega og ævilöng aldursviðbót eru breytingar í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem boðar aðgerðir til að uppræta fátækt og lyfta greiðslum almannatrygginga til tekjulægri lífeyrisþega. Með frumvarpinu eru stigin mikilvæg skref í átt að réttlátara samfélagi,“ sagði Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra í framsöguræðu sinni í þinginu.

Meginatriði frumvarpsins eru eftirfarandi:

Aldursviðbót

Samkvæmt núgildandi lögum fellur svokölluð aldursviðbót niður þegar öryrki verður 67 ára gamall. Lagt er til að þessu verði breytt og að aldursviðbótin gildi áfram eftir að ellilífeyrisaldri er náð.

Aldursviðbótin er mánaðarleg greiðsla frá Tryggingastofnun sem er ætluð þeim sem eru metnir til örorku ungir að árum og hafa því litla eða enga möguleika á að ávinna sér réttindi í atvinnutengdum lífeyrissjóðum. Ráðherra benti í þinginu á að það að láta aldursviðbótina gilda út ævina væri mikið réttlætismál.

„Þetta getur skipt sköpum fyrir öryrkja, sem á einni nóttu, 67 ára afmælisnóttunni, misstu þessi réttindi, þegar þeir hófu töku ellilífeyris,“ sagði hún.

Almennt frítekjumark ellilífeyrisþega

Í frumvarpinu er lagt til að almennt frítekjumark ellilífeyrisþega hækki. Frítekjumarkið nær til allra tekna eldri borgara, annarra en atvinnutekna.

Í dag er frítekjumarkið 36.500 kr. á mánuði en í frumvarpinu er lagt til að það hækki upp í 41.500 kr. á mánuði nú um áramótin, hækki aftur ári síðar og endi loks í 60.000 kr. á mánuði þann 1. janúar 2028.

Á ársgrundvelli þýðir þetta að í dag má ellilífeyrisþegi hafa 438.000 kr. í tekjur á ári án þess að ellilífeyrisgreiðslur hans frá Tryggingastofnun byrji að lækka. Þegar breytingarnar verða að fullu komnar til framkvæmda mun viðkomandi hins vegar geta haft 720.000 kr. í tekjur á ári án þess að greiðslurnar lækki. Munurinn þarna á milli er 282.000 kr.

„Hækkun frítekjumarksins mun skila tekjuaukningu til mikils meirihluta eldri borgara,“ sagði ráðherra í framsöguræðu sinni. „Við lögðum áherslu á það við stjórnarmyndun að eldri borgarar fengju raunverulegar kjarabætur og þessi aðgerð er hluti af þeim kjarabótum.“

Skráning upplýsinga, endurhæfing og fleira

Í frumvarpinu eru einnig lagðar til aðrar breytingar, meðal annars sem varða nýja örorku- og endurhæfingarkerfið.

Þannig er lagt til að Tryggingastofnun starfræki upplýsingakerfi samhæfingarteyma og haldi skrá með upplýsingum um framvindu viðurkenndrar meðferðar og endurhæfingar einstaklinga. Skránni er ætlað að tryggja nauðsynlega yfirsýn yfir þjónustu og stuðla að samfellu í þjónustu og greiðslum. Persónuauðkenni í skránni verða dulkóðuð.

Ráðherra lagði í ræðu sinni áherslu á að breytingunni væri ætlað að stuðla að því einstaklingar fengju rétta endurhæfingarþjónustu á réttum stað og á réttum tíma.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    Barnaverndarkerfið skaðar börn en tekur enga ábyrgð

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Ríkisstjórnin skoðar að slaufa krónunni og taka upp aðra mynt

    30 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Þjófar sendir úr landi

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Sonur Þorsteins Má neitaði skýrslutöku í Namibíumálinu

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Rúmenskir karlar handteknir, grunaðir um vasaþjófnað

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?