• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 17. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fátækt flóttafólk frá Íslandi – Íslendingar flýja okur og óstjórn og flytja til Spánar

Katrín Jakobsdóttir - Stjórnvöld hafa brugðist

Eyþór Arnalds gefur ekki kost á sér í borgarstjórnarkosningunum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
21. desember 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0
,,Ég hef ákveðið að gefa ekki kost á mér á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor.“ Segir Eyþór Arnalds á vef sínum nú rétt eftir miðnættið.

,,Ég mun að sjálfsögðu gegna skyldum mínum út kjörtímabilið og láta síðan af þátttöku í stjórnmálum að sinni. Ákvörðun mín er tekin af persónulegum ástæðum, ekki pólitískum. Ég er þess fullviss að Sjálfstæðisflokkurinn mun vinna góðan sigur í vor og þeir sem þekkja mig vita að ég óttast ekki niðurstöður í nokkru prófkjöri. Eins er rétt að árétta að ákvörðunin er algjörlega óháð því hvaða fyrirkomulag sjálfstæðismenn í Reykjavík kjósa að viðhafa við val á framboðslista eða hvaða einstaklingar munu gefa kost á sér í því vali.

Fram undan er löng og ströng kosningabarátta sem kallar á að allt annað víki á meðan. Ég hef einfaldlega komist að þeirri niðurstöðu að ég þurfi og vilji meiri tíma til að sinna mér og mínu, heimili og hugðarefnum. Nú er það annarra að taka við keflinu í því boðhlaupi sem pólitíkin er. Sjálfstæðisflokkurinn býr að því að þar er stór og breið forystusveit og enginn hörgull á fólki til þess að taka við því og leiða Sjálfstæðisflokkinn til sigurs. Það verður sigur Reykjavíkur og Reykvíkinga.

Ég vil þakka öllum þeim sem hafa verið mér samferða á þessari pólitísku vegferð í borginni síðustu fjögur árin, bæði liðsmönnum og mótherjum. Sérstaklega þakka ég auðvitað öllum þeim sem hafa stutt mig dyggilega með ráðum og dáð. Því fólki verð ég ævarandi þakklátur.

Ég óska Sjálfstæðisflokknum velfarnaðar í komandi kosningum og ég mun leggja mitt af mörkum til að vinna Sjálfstæðisflokknum brautargengi í vor.
Þá vil ég nota tækifærið og óska öllum gleðilegra jóla og friðar og farsældar á nýju ári.
Eyþór Arnalds.“

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fólk hringir í Neyðarlínuna eftir sjúkrabíl til að losna við bið á Bráðamóttöku

    Hring­veg­ur­inn lok­að­ur vegna árekst­urs

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • ESB neyðir Svíþjóð til að loka vatnsorkuverum

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
  • Viðvörun vegna veðurs

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Ekið á gangandi vegfaranda

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Lögreglan leitar manns

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?