• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Frumvarp um framlengingu lokunarstyrkja samþykkt – 11 milljarðar í beina styrki

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
22. janúar 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
Ríkisstjórnin samþykkti að leggja fyrir Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjárstuðning til minni rekstraraðila. Frumvarpið felur í sér framlengingu lokunarstyrkja til þeirra sem hafa tímabundið þurft að loka starfsemi sinni vegna sóttvarnaráðstafana og orðið af verulegum tekjum vegna þess. Lagt er til að úrræðið verði í öllum meginatriðum sambærilegt og gilt hefur um fyrri lokunartímabil í faraldrinum.

Lagt er til að hámarksfjárhæð lokunarstyrkja verði hækkuð úr 260 millj. kr. í 330 millj. kr. en hækkunin er í samræmi við tímabundinn ramma Evrópusambandsins um ríkisaðstoð til stuðnings hagkerfinu vegna heimsfaraldurs Covid-19. Upphaflega gilti tímabundni ramminn til 31. desember 2020 en hann hefur verið framlengdur og gildir nú út júní 2022.

Gert er ráð fyrir að sótt verði um styrkina á vef Skattsins, þar sem nánari skilyrði verða tilgreind.

11 milljarðar í beina styrki

Frá upphafi heimsfaraldursins í mars 2020 hafa stjórnvöld veitt fjölbreyttan stuðning í úrræðum fyrir einstaklinga og rekstraraðila. Má auk lokunarstyrkja nefna viðspyrnu- og tekjufallsstyrki, útgreiðslu séreignarsparnaðar, sérstakan barnabótaauka og fleiri aðgerðir til verndar og viðspyrnu vegna heimsfaraldursins en heildarumfang COVID ráðstafana árin 2020 og 2021 nam 215 milljörðum króna.

Helstu sértæku efnahagsúrræði stjórnvalda vegna faraldursins runnu sitt skeið á nýliðnu ári en samhliða kröftugum efnahagsbata á árinu hafði aðsókn í úrræðin minnkað . Þá hafa sértæk úrræði stjórnvalda vegna faraldursins nýst fyrirtækjum í ferðaþjónustu vel, sem og fyrirtækjum í veitingarekstri. Alls hafa fyrirtæki í veitingarekstri fengið 11 ma.kr. í beina styrki frá hinu opinbera auk þess sem greinin hefur nýtt sér ríkistryggð lán fyrir ríflega 2 ma.kr. og skattfrestanir.

Fyrr í vikunni var, í ljósi hertra sóttvarnartakmarkana, mælt fyrir frumvarpi um sérstaka veitingastyrki á Alþingi og frumvarpi sem heimilar fyrirtækjum í tilteknum flokkum veitingaþjónustu, sem hafa orðið að sæta takmörkunum á opnunartíma, að fresta staðgreiðslu skatta og greiðslu tryggingagjalds.

Umræða
Share3Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    57 deilingar
    Share 23 Tweet 14
  • Alþingismanni hótað

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum?

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • ,,Á pappír var fiskurinn í góðu lagi – ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða“

    55 deilingar
    Share 22 Tweet 14
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?