Ólafur Ísleifsson og Karl Gauti Hjaltason hafa ákveðið að ganga til liðs við þingflokk Miðflokksins frá og með deginum í dag. Miðflokkurinn er þar með langstærstur allra flokka í stjórnarandstöðu, með samtals níu þingmenn og tekur þar með sæti Samfylkingarinnar sem að hefur sjö þingmenn og það gæti haft áhrif á skipan nefnda ofl. á Alþingi.
Í tilkynningu segir að þeir eigi samleið með Miðflokknum í stuðningi við láglaunafólk og þá sem standa höllum fæti í íslensku samfélagi. Þá séu þeir og Miðflokksmenn sammála um nauðsyn þess að leiðrétta kjör hinna lægst launuðu og skapa öldruðum og öryrkjum tækifæri til að bæta hag sinn með aukinni vinnu án skerðingar almannatryggingabóta.
„Á vettvangi Miðflokksins teljum við okkur geta náð betri árangri í baráttumálum okkar og styrkt málefnastöðu flokksins. Við höfum sameiginlega sýn á sjálfstæði og fullveldi þjóðarinnar, yfirráð hennar á auðlindum sínum og mikilvægi vestrænnar samvinnu. Við teljum að á vettvangi Miðflokksins styrkjum við stöðu okkar á Alþingi til að knýja á um framgang þeirra málefna, sem kjósendur treystu okkur fyrir í síðustu alþingiskosningum,“ segja þeir í tilkynningunni.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafði þetta um málið að segja: ,,Þingmennirnir Ólafur Ísleifsson og Karl Gauti Hjaltason tilkynntu nú fyrir skömmu að þeir hygðust ganga til liðs við Miðflokkinn.
Með því bætast tveir gríðaröflugir þingmenn við þingflokk okkar sem verður sá þriðji stærsti á Alþingi og stærsti flokkur stjórnarandstöðunnar.
Þeir Karl Gauti og Ólafur hafa gert grein fyrir því að þeir gangi til liðs við flokkinn á grundvelli þeirra málefna sem hann stendur fyrir og vegna þess með hvaða hætti við vinnum að stjórnmálum. Það er með áherslu á skynsemishyggju og lausnir auk festunnar sem þarf til að komast í gegnum hindranir og standa við loforð.
Hinir nýju þingmenn Miðflokksins hafa verið pólitískir bandamenn okkar á Alþingi frá því strax eftir kosningar og mikill samhljómur verið milli þeirra og þingmanna flokksins. Við höfum flutt mál saman og verið traustir samherjar í stjórnarandstöðu.
Raunar höfum við Ólafur verið samtaka í baráttu fyrir stórum málum á borð við endurskipulagningu fjármálakerfisins í um áratug og ég náði strax mjög vel saman við Karl Gauta sem var sessunautur minn á fyrsta þingi þessa kjörtímabils og samherji í stórum prinsippmálum.
Við munum nú fara fram á að kosið verði aftur í nefndir Alþingis svo að nefndaskipan taki mið af breyttum hlutföllum í stjórnarandstöðu og á þinginu í heild auk þess að gera aðrar ráðstafanir sem af þessu leiða.
Fyrst og fremst munum við þó hefja saman sókn og baráttu fyrir þeim mörgu stóru tækifærum sem hafa verið vanrækt í íslenskum stjórnmálum, betri stjórnmálum og betra samfélagi. Ég treysti því að flokksmenn taki vel á móti Ólafi og Karli Gauta og sýni þeim og öðrum sem síðar kunna að ganga til liðs við okkur að Miðflokkurinn sé í senn einstaklega góður hópur samherja og vina og afl sem getur leitt mikilsverðar framfarir fyrir Íslendinga.“
Við greindum frá því þegar að Karl Gauti og Ólafur íhuguðu að ganga til liðs við Miðflokkinn.