• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 25. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Þess vegna átök

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
22. febrúar 2019
in Aðsent & greinar
A A
0

            Drífa Snædal skrifar

Að vera þerna á hóteli er eitt erfiðasta starf sem hægt er að vinna. Lágmarkslaun í dagvinnu fyrir slíkt starf er 300.000 krónur (eftir 6 mánuði). Eftir skatt fær viðkomandi 236.000 krónur í vasann sem dugir ekki fyrir leigu á þriggja herbergja íbúð. Á mánudaginn hefst atkvæðagreiðsla um vinnustöðvun hótelþerna, sem ráðgert er að hefjist á baráttudegi kvenna 8. mars, til að knýja á um mannsæmandi laun.
Mikil er ábyrgð þeirra sem hafa leyft misréttinu að aukast síðustu ár og áratugi þannig að hagsældin í okkar ríka landi hefur ekki skilað sér til allra. Þeirra er ábyrgðin á því að nú stefnir í hörðustu átök á vinnumarkaði í áratugi.
Það er hárrétt sem bent hefur verið á að deilurnar eru á milli vinnandi fólks og atvinnurekenda. Hins vegar er ekki hægt að horfa fram hjá því að stjórnvöld hafa tækið í höndunum til að jafna kjör og tryggja velferð. Að skattkerfið hafi fengið að þróast með þeim hætti að hinir ríkari fái skattalækkanir á meðan skattbyrðin eykst hjá hinum tekjulægstu er uppskriftin að deilum á vinnumarkaði.
Það var því ekkert nema eðlilegt að verkalýðshreyfingin gæfi stjórnvöldum tækifæri til að afstýra átökum með því að laga skattkerfið. En hvað gerðist? Skattalækkun á alla, þar með talið bankastjórana sem hafa fengið ríflegar launahækkanir undanfarið, svo ekki sé minnst á kjörnu fulltrúana sem kjararáð hefur verið svo rausnarlegt við.
Skattalækkunin nemur svo tæplega sjö þúsund krónum sem eiga að koma til framkvæmda einhverntíman á næstu þremur árum. Þetta voru mikil vonbrigði. Réttlætiskenndinni er greinilega ekki fyrir að fara við ríkisstjórnarborðið. En nú er ljóst að vinnandi fólk þarf að einbeita sér að atvinnurekendum til að ná fram réttlæti og sanngirni.
Í gær var viðræðum fjögurra stéttarfélaga við atvinnurekendur slitið og fleiri stéttarfélög til viðbótar vísuðu deilunni til sáttasemjara. Ekki er loku fyrir það skotið að fleiri félög vísi á næstunni. Tími  sanngirni er runninn upp, vinnandi fólk er tilbúið að sækja það sem því ber; lífsgæði, velferð og réttlátt kaup fyrir sína vinnu.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Heiða Björg í leynihópi – „rústum þessum gaurum“

    ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • ,,Sólveig Anna flengdi Hallgrím Helgason á beran bossann“

    82 deilingar
    Share 33 Tweet 21
  • Heiða Björg í leynihópi – „rústum þessum gaurum“

    78 deilingar
    Share 31 Tweet 20
  • Fýlustjórnun, þagnarbindindi og hunsun eru gereyðingarvop

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Nýtt flugfélag í Keflavík

    130 deilingar
    Share 52 Tweet 33
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?