Hugleiðingar veðurfræðings
Djúp lægð skammt vestur af landinu þokast til suðvesturs og síðan kemur smálægð úr norðaustri í kjölfar hennar. Snjóar líklega um norðanvert landið í dag og hvessir allhressilega norðvestantil. Minnkandi úrkoma seinnipartinn á norðausturlandi og einig norðvestantil í kvöld. Annars staðar verða él á stangli
Í gildi eru gular veðuviðvarniar fyrir Vestfirði, Strandir og Norðurland vestra frá hádegi og fram á nótt.
Norðanáttin heldur síðan velli á morgun, föstudag, hægari þó með éljum víða um land, einkum um landið norðan- og austanvert. Spá gerð: 22.02.2024 06:30. Gildir til: 23.02.2024 00:00.
Gul viðvörun vegna veðurs: Vestfirðir og Strandir og norðurland vestra
Veðurhorfur á landinu
Breytileg átt 3-10 og él á víð og dreif fram eftir morgni, en snjókoma norðaustantil og síðar um allt norðanvert landið. Gengur í norðan- og norðaustan 13-20 m/s norðvestantil seinnipartinn, annars mun hægari. Minnkandi úrkoma í kvöld. FEr að lægja í nótt.
Norðan 8-15 á morgun, él fyrir norðan og austan, en bjartviðri á Suður- og Vesturlandi. Hiti kringum frostmark, en kólnandi veður seint á morgun.
Spá gerð: 22.02.2024 04:00. Gildir til: 23.02.2024 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Norðan 5-10 m/s, en 10-15 austast. Dálítil él á Norður- og Austurlandi, en annars léttskýjað. Frost 0 til 10 stig, kaldast inn til landsins.
Á sunnudag:
Suðvestlæg átt, talsvert frost og þykknar smám saman upp, dálítil snjókoma eða slydda og jafnvel rigning vestanlands um kvöldið og hlýnar þar.
Á mánudag:
Suðlæg átt með rigningu og mildu veðri, en úrkomulíitð norðaustantil.
Á þriðjudag:
Snýst í norðlæga átt með snjókomu eða éljum fyrir norðan og ört kólnandi veður.
Á miðvikudag:
Útlit fyrir suðlæga átt, slyddu eða snjókomu öðru hvoru og heldur hlýnandi veður.
Spá gerð: 22.02.2024 07:36. Gildir til: 29.02.2024 12:00.