Ragnar Þór Ingólfsson birti skondna færslu á Facebook í dag, þar sem hann lýsir því yfir að opinberlega sé eiginkona hans, Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir að fagna 65 ára afmæli sínu samkvæmt sama miðli.
,,Elsku eiginkona mín Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, sími 7800660, á 45 ára afmæli í dag.
Það sem er sérstakt við hennar afmæli er að hún á ekki afmæli á Facebook því tæknitröllið ástin mín var að fikta eitthvað í öllum tæknigræjunum sínum um jólin í fyrra og breytti óvart afmælisdeginum á Facebook í 4.jan og aldrinum í 64 ára. Hún getur ekki breytt þessu til baka því fésbókin er víst með eitthvað vesen.
Og þar við situr að konan mín er 65 ára á Facebook síðan 4.jan og engin óskar henni til hamingju með daginn í dag nema örfáir sem muna afmælisdaga upp á gamla mátann.
Ég vil því biðla til allra vina minna að fara inn á Facebook hjá Guðbjörgu, sjá tengil að ofan, og óska þessari sein heppnu en vel heppnuðu konu til hamingju með afmælið. Nú eða hringja í hana eða senda henni hamingjuóskir í síma 7800660.
Og endilega deilið þessu áfram, því fleiri kveðjur sem hún fær því betra, fyrir mig, því henni sárnaði þetta mjög þegar hún lá í fanginu mínu í morgun og sagði mér tárvot frá raunum sínum gagnvart stjórnendum fésbókar, sem vilja ekki breyta þessu.
Gleðjum og gleðjumst með Guðbjörgu.“ Segir Ragnar Þór í færslu á Facebook og Fréttatíminn óskar Guðbjörgu Ingunni til hamingju með 45 ára afmælið.