Hugmyndir mínar um efnahagsaðgerðir sem hægt er að koma í verk strax og virka fljótt
Viðskiptafræðingurinn og fyrrverandi verðbréfamiðlari Guðmundur Franklín Jónsson hefur miklar áhyggjur af áhrifum kórónaveirunnar á líf fólks og efnahagsmál á Íslandi.
Guðmundur furðar sig á því að tryggingargjald sé ekki aflagt, en gistináttaskattur er lagður niður þegar engir eru að gista á hótelum. Borga á fullan skatt af séreignasparnaði sem fólk hefur verið að nurla lengi saman.
Hægt er að hlusta á fróðlegan pistil hans hér að neðan í myndbandinu, þar sem hann greinir aðgerðir ríkisstjórnarinnar, lið fyrir lið:
Sjö lyklar að heilbrigðara hagkerfi:
1) Frysta afborganir og vexti af húsnæðislánum heimilanna og fresta greiðslum um 18 mánuði og lengja lánatímann að sama skapi.
3) Festa gengi krónunnar miðað við gengið í dag.
4) Fella niður allar skerðingar/tekjutengingar öryrkja og eldri borgara og tryggja að lífeyrisréttindi séu erfanleg.
5) Sveitarfélög verði skylduð til að fella niður öll fasteignargjöld tímabundið.
6) Fella niður launatengd gjöld (Tryggingargjald) í 18 mánuði.
7) Setja skattleysismörkin í 500.000 kr.
https://www.youtube.com/watch?v=zixJq_EwcAk&feature=share&fbclid=IwAR3YUTDGSDqfmwhIZJXcFL24JdrejtPW_tpLB9102xfu_qT8IyZHi1poEqo