Hugleiðingar veðurfræðings
Langt suður í hafi er víðáttumikil og djúp lægð, sem veldur norðaustanstomri á landinu, en roki syðst. Í nótt gekk á með hríðarveðri í flestum landshlutum, en fór síðan að rofa til sunnan- og vestanlands. Gular veðurviðvaranir eru í gildi tli kvölds og eru þeir sem hyggja á ferðlög hvattir til að kynnar sér þær og ástand vega áður en lagt er af stað.
Lægðin fjarlægist í dag og grynnist heldur, en dregur þá jafnframt úr vindi. Norðaustankaldi eða -strekkingur og víða dálítil él á morgun, en bjartviðri og Suður- og Vesturlandi. Áfram frost í öllum landshlutum, en sums staðar frostlaust við suður- og vesturströndina að deginum. Dregur að líkindum enn frekar úr vindi um helgina, en víða lítilsháttar snjókoma eða él og áfram kalt.
Gul viðvörun vegna veðurs: Suðurland, Vestfirðir, Norðurland eystra, Austurland að Glettingi, Austfirðir, Suðausturland og Miðhálendi
Veðurhorfur á landinu
Norðaustlæg átt, víða 13-18 m/s, en 20-28 syðst á landinu. Snjókoma með köflum eða él á austanverðu landinu, en rofar heldur til vestanlands. Norðaustan 13-25 m/s um hádegi, hvassast suðaustantil, en dregur síðan hægt úr vindi, 10-18 m/s seint í kvöld. Dálítil él víða um land síðdegis, en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Svipað veður á morgun, en dregur þó enn frekar úr vindi. Frost 0 til 8 stig, kaldast í innsveitum norðaustanlands.
Spá gerð: 22.03.2023 04:52. Gildir til: 23.03.2023 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Norðaustan 8-15 m/s og dálítil él, en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Frost víða 0 til 8 stig, en frostlaust syðst.
Á föstudag og laugardag:
Norðaustan átt, víða 8-13 m/s og smá él, einkum með norðurströndinni, en lengst af léttskýjað syðra. Frost 0 til 10 stig, kaldast inn til landsins.
Á sunnudag og mánudag:
Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt og allvíða dálítli snjókoma eða él, en áfram kalt í veðri.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir vaxandi austanátt með snjókomu syðst á landinu og áfram talsverðu frosti.
Spá gerð: 21.03.2023 20:04. Gildir til: 28.03.2023 12:00.