Barnavernd Garðabæjar hefur til rannsóknar grun um að brotið hafi verið gegn barni á leikskólanum Krakkakoti á Álftanesi. Málið kom upp í liðinni viku og foreldrar voru upplýstir um það í morgun.
Samkvæmt upplýsingum fréttastofu ríkisútvarpsins, kom málið upp á fimmtudaginn í síðustu viku. Foreldrar barna á leikskólanum voru upplýstir um málið á fundi í morgun.
Guðný Hrönn Antonsdóttir, samskipta- og kynningarfulltrúi hjá Garðabæ, staðfestir við fréttastofu rúv að grunur um brot gegn barnaverndarlögum sé til rannsóknar hjá barnavernd. Hún segist ekki geta gefið upp hvers eðlis brotið er, né hvort það var af hendi starfsmanns. Þá gefur hún ekki upp hvort málið hafi verið tilkynnt til lögreglu.
Krakkakot er á Álftanesi. Þar eru börn á aldrinum eins til fimm ára. Á leikskólanum eru um það bil hundrað börn og 28 starfsmenn. Boðað var til tveggja funda með foreldrum í morgun og stóðu fundir upp undir hádegi.
Fleiri sambærileg mál hafa komið upp á leikskólum að undanförnu. Á miðvikudag í síðustu viku var greint frá því í fréttum RÚV að starfsmaður leikskóla á Akranesi sæti rannsókn hjá lögreglu vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni. Þá barst Fréttatímanum ábending um grun um kynferðisbrot á leikskóla í Reykjanesbæ.


