95 mál voru skráð hjá LRH frá klukkan 17-05 og eru 5 aðila í fangaklefa þegar þetta er ritað. Hér eru nokkur þeirra mála sem komu inn á borð lögreglu á fyrrgreindu tímabili, listi þessi er ekki tæmandi.
Lögreglustöð 1
- Ökumaður sem var í mjög annarlegu ástandi sökum ölvunar og fíkniefna stöðvaður í hverfi 105 þar sem hann ók á móti umferð.
- Óskað eftir aðstoð lögreglu á skemmtistað í hverfi 101 þar sem kona datt niður stiga, hún flutt á bráðamóttöku með sjúkrabifreið.
- Aðili handtekinn og vistaður í fangaklefa vegna líkamsárásar í hverfi 108.
- Aðili handtekinn í hverfi 101 þar sem hann var að selja fíkniefni, aðilinn gat ekki framvísað skilríkjum eða gert grein fyrir sér með öðrum hætti.
- Óskað eftir aðstoð lögreglu vegna aðili sem féll fram fyrir sig með þeim afleiðingum að hún slasaðist í andliti, flutt á bráðamóttöku með sjúkrabifreið.
- Aðili handtekinn í hverfi 101 eftir að hafa stungið mann fyrir utan skemmtistað í miðborginni. Árásarþoli fluttur með sjúkrabifreið á bráðamóttöku en ekki liggur fyrir um alvaleika áverkana, árásaraðili vistaður í fangaklefa.
Lögreglustöð 2
- Umferðaróhapp í Hafnarfirði, slysalaust og lítið tjón
Lögreglustöð 3
- Skráningarmerki fjarlægð af tíu bifreiðum ýmist vegna vanrækslu á að færi bifreiðarnar í skoðun eða þær ótryggðar.
Lögreglustöð 4
- Aðili handtekinn í Mosfellsbæ vegna framleiðslu fíkniefna, Ræktunin tekin niður, efni og búnaður haldlagt.
Umræða

