• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 3. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ferðamálastefna samþykkt á Alþingi

Listamannalaun hækkuð – Launamánuðum fjölgað úr 1.600 í 2.490

Fjölgun listamannalauna samþykkt: Fjárfest í menningarlegri framtíð okkar allra

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
22. júní 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Alþingi samþykkt í dag breytingu á lögum um listamannalaun sem fela í sér fjölgun launasjóða sem starfslaun eru veitt úr og fjölgun árlegra úthlutunarmánaða. Starfslaunamánuðum verður fjölgað úr 1.600 í 2.490 á 4 árum. Einnig verða til tveir nýir sjóðir; Launasjóði kvikmyndahöfunda og Vegsemd, sjóður listamanna 67 ára og eldri.

Fjöldi starfslauna hefur haldist óbreyttur í 15 ár eða frá því að gildandi lög tóku gildi árið 2009. Er því um þarfa og tímabæra uppfærslu að ræða samkvæmt menningar- og viðskiptaráðherra.

„Ég er ákaflega glöð með að samstarfsfólk mitt í þinginu hafi séð tækifærin sem felast í því að fjárfesta í listafólkinu okkar. Það gleymist oft í þessari umræðu að listir auðga ekki bara andann heldur eru þær líka tekjulind. Dæmi er um að verkefni sem hlaut listamannalaun í sex mánuði hafi leitt til meira en þriggja ársverka og 7,5 milljóna í skatttekjur. Það er því ekki tilviljun að menning og viðskipti búa í sama ráðuneytinu. Það er einmitt af því að þessir málaflokkar eiga svo fallega saman,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir.

Ráðherra segir að listafólk landsins séu mikilvægir sendiherrar lands og þjóðar og haldi Íslandi á lofti í alþjóðasamfélaginu. Hún bendir á að fyrsta snerting Íslands við erlenda aðila sé oft í gegnum íslenska list hvort sem það er bók, tónlist eða annað listform.

„Eitt eru tekjur, þær skipta máli en það skiptir ekki síður máli að hlúa að sjálfsmynd okkar sem þjóðar. Hvernig umhverfi viljum við búa við og hvað viljum við bjóða listafólkinu okkar upp á? Það er nauðsynlegt að tryggja að listamenn vilji búa og starfa hér. Fjöldi listamanna sem hefur þegið listamannalaun hefur síðar öðlast viðurkenningu á heimsvísu og skapað okkur þannig bæði mikilvæga umræðu og tekjur fyrir utan allan þann menningarlega fjársjóð sem skapast,“ segir ráðherra.

Nánar má lesa um lagabreytinguna hér.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Stórbruni í Hafnarfirði

    Stórbruni í Hafnarfirði

    48 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    32 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Davíð Oddsson er látinn

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Einfaldara og fljótlegra að uppfæra ökuskírteini

    78 deilingar
    Share 31 Tweet 20
  • Tugi milljarða til Íran frá Íslandi

    78 deilingar
    Share 31 Tweet 20
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?