Þyrla kölluð út vegna alvarlegs slyss

Þyrla Land­helgis­gæslunnar hefur verið kölluð út vegna atviks í Njarðvík, lögregla og sjúkralið er einnig á svæðinu. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum er um að ræða alvarlegt slys sem varð við Njarðvíkurhöfn og er mjög mikill viðbúnaður á svæðinu. Ekki hefur náðst í lögreglu vegna málsins og engar frekari upplýsingar liggja fyrir. Umræða