• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ríkið afli tekna og auki velferð

Það skiptir máli fyrir heilsuna hvar þú situr í flugi – “Viltu sitja við glugga eða gang?”

“Viltu sitja við glugga eða gang?”

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
22. júlí 2024
in Aðsent & greinar, Afþreying, Fréttir, Innlent
A A
0

Það getur skipt máli fyrir heilsu þína hvar þú situr þegar þú ferð í flug, sérstaklega löng flug. Rannsóknir benda til að það sé verra fyrir heilsuna að sitja í gluggasæti en við gang.

Þetta hefur ekkert með gluggann sjálfan að gera, geimgeislun eða hitastig sem kannski væri það fyrsta sem maður gæti látið sér detta í hug.

Þekkt er að á löngu flugi geta myndast blóðtappar í djúpum bláæðum ganglima, fyrirbæri sem kallað hefur verið DVT (deep vein thrombosis). Lengi vel var talið að meiri hætta væri á þessu ef ferðast er í venjulegu farrými og fékk DVT því viðurnefnið “economy class syndrome”. Slíkir blóðtappar eru ekki hættulausr enda geta þeir rekið til lungna og setið fastir í slagæðum þeirra (blóðtappi í lunga).

Ýmsir áhættuþættir fyrir blóðtappa í djúpri bláæð hafa verið skilgreindir. Sennilega er löng kyrrseta stærsti áhættuþátturinn. Ef þú situr í gluggasæti er ólíklegra að þú hreyfir þig í flugi en ef þú situr við gang eða í miðsæti. Sitjir þú við gang geturðu skroppið á salernið og staðið upp þegar þér sýnist, án þess að ónáða nokkurn mann. Ef þú aftur á móti situr við gluggann ertu til vandræða í hvert sinn sem þú þarft að standa á fætur. Þú veigrar þér við að hreyfa þig því það getur truflað sessunauta þína sem kannski eru sofandi eða í miðri máltið.

Í klíniskum leiðbeiningum um varnir gegn blóðsegum, frá American College of Chest Physicians (ACCP), kemur fram að það er áhættuþáttur fyrir bóðtappa að sitja í gluggasæti í flugi. DVT hefur ekkert að gera með hvort þú ert á fyrsta farrými eða hvað þú hefur mikið pláss í sætinu þínu. Leiðbeiningar þessar eru birtar í nýjasta hefti tímaritsins Chest og þú getur skoðað þær hér.

Prófessor Gordon H Guyatt frá Hamilton, Ontario í Kanada sem fór fyrir hópnum sem samdi leiðbeiningarnar bendir á að ef þú ert heilbrigður einstakingur sé hættan á DVT mjög lítil, jafnvel á löngu flugi, minni en 1/1.000. Leiðbeiningarnar beinast fyrst og fremst að þeim sem eru í áhættu en það eru einstaklingar sem hafa fengið blóðtappa áður, hafa brenglun í storkukerfi eða eru hreyfihamlaðir fyrir. Aðrir sem eru í áhættuhóp eru eldri einstaklingar, ófrískar konur, konur sem taka estrogen hormón, t.d. p-pilluna og einstaklingar sem nýlega hafa gengist undir skurðaðgerð.

Guyatt leggur áherslu á að ef þú ert í flugi sem er lengra en sex tímar sé ráðlegt að standa upp reglulega og hreyfa sig. Einnig getur verið gagnlegt að spenna kálfavöðvana þótt þú sitjir í sætinu þínu. Ef þú ert í áhættuhóp getur hjálpað að nota teygjusokka, svokallaða flugsokka sem hægt er að fá víða. Ekki hefur verið sýnt fram á að aspirín eða magnyl komi í veg fyrir blóðtappamyndun í flugi.

Ef þú ert í löngu flugi skaltu standa upp á 1-2 tíma fresti og ganga um. Hikaðu ekki við þetta, jafnvel þótt þú sitjir í gluggasæti og þurfir að vekja farþegana við hliðina á þér. Þeim kemur að vísu ekki til með að finnast þú ánægjulegur ferðafélagi en það gleymist. Það er ekki ráðlegt að taka svefntöflu og liggja í hnipri allt flugið.

Munið eftir að læka við á Facebook

Umræða
Share77Tweet48
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    208 deilingar
    Share 83 Tweet 52
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?