• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 10. desember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu

Umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
22. ágúst 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Enn sem fyrr er ástæða til að vekja athygli á mikilvægi þess að allir vegfarendur fari ávallt varlega í umferðinni og virði gildandi umferðarlög.

Í síðustu viku slösuðust sjö vegfarendur í sex umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu. Tímasetningar, aðdragandi og orsakir slysanna sem urðu vikuna 11. – 17.  ágúst, en alls var tilkynnt um 33 umferðaróhöpp í umdæminu.

Sunnudaginn 11. ágúst kl. 11 féll hjólreiðamaður af reiðhjóli á hjólastíg í Traðarlandi í Reykjavík, við Blesugróf, þegar annar hjólreiðamaður hjólaði aftan á hjólið hans. Hjólreiðamaðurinn, sem hjólað var á, var fluttur á slysadeild.

Þrjú umferðarslys voru tilkynnt miðvikudaginn 14. ágúst. Kl. 15.02 var bifreið ekið á gangandi vegfaranda á Vatnsendavegi í Kópavogi, við Ögurhvarf.  Ökumaðurinn ók rakleiðis af vettvangi, en gaf sig síðar fram eftir að auglýst var eftir honum í fjölmiðlum. Vegfarandinn var fluttur á slysadeild. Kl. 20.52 var bifreið ekið austur Vesturlandsveg í Reykjavík, í Ártúnsbrekku, og aftan á vinnuvél sem var ekið sömu leið með tendruð gulblikkandi vinnuljós. Ökumaður bifreiðarinnar, sem er grunaður um ölvunar- og fíkniefnaakstur, var fluttur á slysadeild. Og kl. 21.38 var bifreið ekið austur Vesturlandsveg í Reykjavík, á móts við Esjuberg, og á ljósastaur við götuna. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild.

Fimmtudaginn 15. ágúst kl. 6.27 var bifreið ekið austur Vesturlandsveg á Kjalarnesi, á milli Sjávarhóla og Saltvíkur, þar sem ökumaðurinn missti stjórn á henni. Við það valt bifreiðin út af akbrautinni og inn á miðeyju og hafnaði síðan á vegriði. Að sögn ökumanns var vatnspollur á veginum þar sem hann missti stjórnina. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild.

Föstudaginn 16. ágúst kl. 10.20 var bifreið ekið vestur Sæbraut í Reykjavík, að Klettagörðum, og aftan á aðra bifreið sem var á sömu leið, nýtekin af stað eftir að grænt umferðarljós kviknaði á gatnamótunum. Báðir ökumennirnir voru fluttir á slysadeild.

Frá vettvangi á Kjalarnesi.

Umræða
Share5Tweet3
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lög samþykkt sem auka réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda og bæta upplýsingar um leigumarkaðinn

    Húsnæðiskaup: Vaxta- og afborgunarlaus lán frá ríkinu

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Banaslys í Mosfellsbæ

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Fjórir látnir á Tenerife – alda hreif með sér hóp fólks

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Ók á um 160 km. hraða – Menn á stolnum bíl handteknir

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?