Hugleiðingar veðurfræðings
Lægð suður af Hvarfi og hæðarhryggur austan við land beina til okkar lofti af suðlægum uppruna á næstunni.
Í dag er spáð suðaustan 5-13 m/s sunnan- og vestanlands, en 8-15 á morgun. Skýjað á þessum slóðum og sums staðar dálítil væta, bætir í úrkomu seinnipartinn á morgun. Á Norður- og Austurlandi er útlit fyrir veður sem flestir myndu telja heppilegra helgarveður, þar verður vindur hægari en sunnan heiða og víða bjart og fallegt veður. Hiti á landinu í dag og á morgun á bilinu 12 til 21 stig, hlýjast norðaustantil og þar fer hiti væntanlega enn hærra á sunnudag.
Á höfuðborgarsvæðinu á morgun (Menningarnótt) verður vindhraði kringum 10 m/s, sem er vindur sem finnst vel fyrir. Búsast má við skýjuðu veðri.
Hann ætti að hanga þurr fyrir hádegi, en síðdegis er útlit fyrir dálitla vætu af og til og bætir síðan í rigningarkaflana um kvöldið. Hiti á bilinu 12 til 14 stig.
Spá gerð: 22.08.2025 06:35. Gildir til: 23.08.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Suðaustan 5-13 m/s sunnan- og vestanlands í dag, en 8-15 á morgun og hvassari undir Eyjafjöllum annað kvöld. Skýjað á þessum slóðum og sums staðar dálítil væta, bætir í úrkomu seinnipartinn á morgun. Hægari vindur og víða bjart á Norður- og Austurlandi. Hiti 13 til 21 stig, hlýjast norðaustantil.
Spá gerð: 22.08.2025 07:52. Gildir til: 24.08.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag:
Suðaustan 5-13 og rigning eða súld með köflum, en þurrt norðaustantil á landinu. Hiti 13 til 23 stig, hlýjast norðaustanlands.
Á mánudag og þriðjudag:
Austlæg átt 5-10, en 10-18 við suðurströndina. Rigning af og til á sunnanverðu landinu, en yfirleitt þurrt norðantil. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast norðan- og vestanlands.
Á miðvikudag og fimmtudag:
Austlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum og yfirleitt þurrt á landinu. Hiti 10 til 20 stig, svalast við austurströndina.
Spá gerð: 22.08.2025 08:03. Gildir til: 29.08.2025 12:00.