Hugleiðingar veðurfræðings
Lægðin sem olli óveðri á landinu í gær er nú komin austur fyrir Jan Mayen. Nú í morgunsárið mælist enn hvassviðri úti við norðausturströndina, en þar dregur úr vindi á næstu klukkustundum.
Í dag er útlit fyrir vestlæga átt, yfirleitt á bilinu 8 til 13 m/s. Skúrir eða slydduél í flestum landshlutum og vindur getur aukist tímabundið meðan á hryðjunum stendur. Hiti 2 til 8 stig. Í kvöld lægir og léttir til á sunnan- og vestanverðu landinu og kólnar allvíða niður að frostmarki og þá getur myndast hálka á vegum. Það eru jafndægur á hausti í dag og kominn sá tími þegar vera þarf á varðbergi gagnvart hálku.
Á morgun nálgast lægð úr suðvestri og fer miðja hennar yfir landið. Þá má búast við austlægri og síðar breytiegri átt 5-13 m/s með rigningu. Á Norður- og Austurlandi verður þurrt þangað til síðdegis, en þá fer einnig að rigna þar og slydda á heiðum. Hiti 2 til 9 stig, mildast við suðurströndina.
Dregur síðan úr vindi og úrkomu á föstudag. Á laugardag nálgast síðan enn ein lægðin, og má því gera ráð fyrir að kosningadagurinn verði vinda- og vætusamur.
Veðurhorfur á landinu
Minnkandi norðvestanátt við norðausturströndina. Víða vestlæg átt 5-13 m/s í dag og skúrir eða slydduél í flestum landshlutum. Hiti 2 til 8 stig. Allvíða hægari vindur í kvöld, þurrt og hiti nálægt frostmarki.
Austlæg og síðar breytileg átt 5-13 á morgun og rigning. Þurrt á Norður- og Austurlandi þangað til síðdegis, en fer þá einnig að rigna þar og slydda á heiðum. Hiti 2 til 9 stig, mildast við suðurströndina. Spá gerð: 22.09.2021 05:04. Gildir til: 23.09.2021 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Austlæg og síðar breytileg átt 5-13 m/s og rigning, en þurrt á Norður- og Austurlandi þangað til síðdegis. Slydda á heiðum á norðanverðu landinu. Hiti 2 til 9 stig, mildast við suðurströndina.
Á föstudag:
Austlæg eða breytileg átt 3-10. Skýjað og lítilsháttar væta í flestum landshlutum. Hiti breytist lítið.
Á laugardag:
Austan 10-18 og víða rigning, en slydda á heiðum norðantil á landinu. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast á Suðurlandi.
Á sunnudag:
Stíf suðaustan- og austanátt. Rigning suðaustanlands, en lítilsháttar væta um landið vestan- og norðanvert. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Suðvesturlandi.
Á mánudag og þriðjudag:
Útlit fyrir austlæga átt. Væta af og til á austanverðu landinu. Þurrt og bjart með köflum vestantil og hlýtt þar.
Spá gerð: 21.09.2021 21:10. Gildir til: 28.09.2021 12:00.