• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 16. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Brim kaupir tvö skip frá Hafnarfirði með um 3000 tonna kvóta

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
22. október 2019
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

 
BRIM GERIR SAMNING UM KAUP Á TVEIMUR SJÁVARÚVEGSFYRIRTÆKJUM
Brim hf. hefur gert samning um kaup á tveimur sjávarútvegsfyrirtækjum. Annað er Fiskvinnslan Kambur hf. sem rekur útgerð og fiskvinnslu í Hafnarfirði og hitt er útgerðarfélagið Grábrók ehf. sem einnig gerir út frá Hafnarfirði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Fiskvinnslan Kambur gerir út krókabátinn Kristján HF 100 sem var smíðaður í Trefjum hf. í Hafnarfirði á síðasta ári og er búinn öllum nýjasta tækjabúnaði til veiða og aflameðferðar. Honum fylgir um 2.000 tonna krókaaflamark að mestu í þorski. Þá rekur fyrirtækið tæknivædda fiskvinnslu í eigin húsnæði við Óseyrarbraut í Hafnarfirði sem er búin margvíslegum hátæknibúnaði m.a. nýrri vinnslulínu og vatnsskurðarvél frá Völku hf. sem var tekin í notkun á síðasta ári. Kaupverðið nemur 2.3 milljörðum króna og verður greitt að hluta með hlutabréfum í Brimi hf. sem eru í eigu félagsins og nema um 1% af heildarhlutafé Brims að verðmæti um 835 milljónir króna. Grábrók ehf. gerir út krókabátinn Steinunni HF 108 sem var smíðaður árið 2007. Honum fylgir um 850 tonna krókaflamark að mestu í þorski. Kaupverðið er 772 milljónir króna.
Samkomulagið er háð eðlilegum fyrirvörum m.a. um fjármögnun, samþykki stjórnar Brims hf. og samþykki Samkeppniseftirlits og eftir atvikum annarra eftirlitsaðila.
Gangi kaupin eftir fer Brim yfir lögbundið kvótaþak í krókaaflamarki en hefur lögum samkvæmt 6 mánuði til að gera ráðstafanir sem koma félaginu undir það þak.
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims hf.:
„Með þessum kaupum erum við að styrkja Brim sem alhliða fyrirtæki í sjávarútvegi. Við viljum efla starfsemi Brims samhliða því að við höfum styrkt stöðu okkar í markaðssetningu og sölu á vörum félagsins á erlendum mörkuðum. Við bætum núna við okkur þorskveiðiheimildum, tæknivæddum vinnslueiningum og mannauð sem gerir félagið betur í stakk búið til að takast á við erlenda samkeppni í vinnslu íslenskra sjávarafurða. Kambur verður rekinn áfram í húsnæði félagsins sem sjálfstætt dótturfélag Brims en við stefnum að góðu samstarfi með aukna sérhæfingu að markmiði þegar fram líða stundir.“

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Niðurstaða um hvarf Geirfinns Einarssonar?

    ,,Morðinginn er enn á lífi og það er vitað hver hann er“

    78 deilingar
    Share 31 Tweet 20
  • Var Eggert myrtur? – Dularfullt andlát

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Nýtt flugfélag í Keflavík

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • ,,Það er búið að ákveða ofurskatta á bílaumferð í borginni“ segir heimildarmaður í innsta hring

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?