Veðurhorfur á landinu
Suðaustan 8-18 m/s, hvassast suðvestantil. Víða skúrir, en yfirleitt þurrt norðanlands. Hiti 1 til 8 stig. Snýst í hægari suðvestlæga átt vestantil í kvöld og kólnar með rigningu eða slyddu.
Vestan 8-15 og rigning eða slydda austanlands í fyrramálið, en hægari suðvestlæg átt og stöku skúrir eða él vestantil. Gengur í sunnan hvassviðri með rigningu vestanlands á morgun. Hægari og þurrt fyrir austan, en hvessir þar um kvöldið. Hlýnar í veðri. Spá gerð: 22.12.2025 05:36. Gildir til: 23.12.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag (Þorláksmessa):
Vestan 5-13 m/s og rigning eða slydda austanlands, en lægir og léttir til með morgninum. Annars suðlægari og bjart með köflum en stöku skúrir vestanlands. Hiti um eða yfir frostmarki. Gengur í sunnan hvassviðri með rigningu vestanlands eftir hádegi. Hlýnar í veðri.
Á miðvikudag (aðfangadagur jóla):
Sunnan 15-25 m/s, hvassast á Norðurlandi. Rigning sunnan- og vestanlands, og sums staðar talsverð úrkoma, en þurrt að mestu á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 7 til 13 stig.
Á fimmtudag (jóladagur):
Sunnan 13-20 og súld eða rigning með köflum, en úrkomulítið á Norður- og Austurlandi. Áfram hlýtt, en snýst í suðvestan 8-15 með éljum vestanlands um kvöldið og kólnar.
Á föstudag (annar í jólum):
Suðvestlæg átt með éljum, en bjart fyrir austan. Hiti um eða yfir frostmarki.
Á laugardag:
Suðvestlæg átt og lítilsháttar væta, en bjart að mestu fyrir austan. Hlýnandi.
Á sunnudag:
Vestlægari og væta af og til, en þurrt austanlands. Heldur kólnandi.
Spá gerð: 21.12.2025 21:06. Gildir til: 28.12.2025 12:00.

