• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 18. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hættustig vegna snjóflóðahættu á Siglufirði og rýmingar á Ísafirði

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. janúar 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

 

Uppfært 23.01.  Rýming vegna snjóflóðahættu er enn í gildi á Siglufirði og óvissustig á Norðurlandi. Hættustig er á Ísafirði og óvissustig á norðanverðum Vestfjörðum vegna snjóflóðhættu.

Ákveðið hefur verið að rýma reit 9 á Ísafirði, þar sem er atvinnuhúsnæði. Áður hafði verið tryggt að húsin væru mannlaus eftir að vinnu lauk í gær. Nokkur flóð hafa fallið í Skutulsfirði í gær og í nótt, þar af þrjú ofan þessara húsa. Ekkert þessara snjóflóða hefur verið mjög stórt. Sorpmóttaka í Funa er einnig lokuð vegna snjóflóðahættu.

Spáð er áframhaldandi norðan- og norðaustanáttum með skafrenningi og éljagangi fram yfir helgi og því má búast við því að snjóflóðahætta verði viðvarandi næstu daga.

  • Viðvörun
    Hættustig vegna snjóflóðahættu á Siglufirði Meira
  • Viðvörun
    Óvissustig vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi Meira
  • Viðvörun
    Óvissustig vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum Meira
  • Viðvörun
    Hættustig vegna snjóflóðahættu á Ísafirði Meira
  •  Gul viðvörun  vegna veðurs: Vestfirðir, Strandir og norðurland vestra, Norðurland eystra, Austurland að Glettingi og Austfirðir  

https://gamli.frettatiminn.is/23/01/2021/isafjordur-ryming-a-svaedi-9-vegna-snjoflodahaettu/

Uppfært 22.01. kl. 9.40 Staðan á rýmingum á Siglufirði verður endurmetin nú þegar birtir af degi, en veðurspár gera ráð fyrir meiri úrkomu eftir hádegi og enn verra veðri á morgun laugardag.

Vegna snjósöfnunar, veikra snjóalaga og veðurspár framundan var ákveðið að rýma nokkur hús undir Strengsgiljum á Siglufirði á miðvikudag vegna snjóflóðahættu. Húsin sem rýmd voru eru undir varnargarðinum Stóra-Bola sem reistur var 1998-99. Síðan þá hafa mörg snjóflóð fallið á hann og garðurinn hefur bægt þeim frá byggðinni. Í janúar í fyrra féllu mjög stór snjóflóð á varnargarða ofan Flateyri og fóru að hluta til yfir þá. Eftir það hefur verið unnið að endurskoðun á virkni leiðigarða á fleiri stöðum. Fyrstu niðurstöður fyrir Stóra-Bola undir Strengsgiljum gefa til kynna að ef mjög stór flóð falla á garðinn geti gefið yfir hann. Rýmingin nú er því varúðarráðstöfun sem tekur mið af bráðabirgðarýmingarkorti. Þess má geta að ávallt hefur verið gert ráð fyrir rýmingu undir varnargörðum við allra verstu aðstæður.

Spáð er áframhaldandi norðan- og norðaustanáttum með skafrenningi og éljagangi fram yfir helgi og því má búast við því að snjóflóðahætta verði viðvarandi næstu daga.

Færsla frá 20.01.2021

Ákveðið hefur verið að rýma nokkur hús undir Strengsgiljum á Siglufirði vegna snjóflóðahættu. Mörg snjóflóð hafa fallið í dag og síðustu daga á svæðinu frá Siglufirði og inn að Dalvík. Meðal annars féll stórt snjóflóð á skíðasvæðinu á Siglufirði og skemmdi skíðaskálann þar.

Ofan húsanna sem nú eru rýmd er varnargarðurinn Stóri-Boli. Hann var reistur árin 1998-1999 og hafa mörg snjóflóð fallið á hann síðan þá. Rýmingin nú er varðúðarráðstöfun þar sem að við verstu aðstæður getur hluti stórra snjóflóða farið yfri varnargarða eins og sýndi sig þegar snjóflóð fóru yfir varnargarða á Flateyri fyrir rúmu ári síðan.

Stíf N-læg átt með snjókomu hefur verið síðan á mánudag og talsverð úrkoma hefur mælst á annesjum Norðanlands. Á mánudag féll snjóflóð yfir Ólafsfjarðarveg og lokaði honum en í gær sáust talsvert stór snjóflóð úr Ósbrekkufjalli í Ólafsfirði og féll eitt þeirra fram í sjó.

Gul viðvörun er í gildi fyrir Norðurland eystra vegna aukinnar snjókomu, mest á Tröllaskaga með líkum á samgöngutruflunum vegna færðar, einkum á fjallvegum. Búist er við stífri N- og NA átt með snjókomu og éljum fram yfir helgi.

 

Umræða
Share4Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Viðvörun vegna veðurs

    Viðvörun vegna veðurs

    46 deilingar
    Share 18 Tweet 12
  • Lýsa yfir stuðningi við vísitölutengingu lífeyris

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • ESB neyðir Svíþjóð til að loka vatnsorkuverum

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Lögreglan leitar manns

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • ,,Af hverju í ósköpunum ættum við að rukka þig fyrir að nota peningana þína?“

    447 deilingar
    Share 179 Tweet 112
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?