• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

100 eldingar mældar í miklu þrumuveðri

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. febrúar 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Mesta þrumuveður á höfuðborgarsvæðinu frá því að mælingar hófust

,,Þrumuveður gekk yfir SV-land síðdegis fimmtudaginn 21. febrúar 2019 og mældust í því um 100 eldingar. Þrumuveðrið kom úr suðri og sáust eldingar fyrst í því um 1000 km sunnan við Ísland um kl. 03 um morguninn, svo komu eldingarnar nær landinu eftir því sem leið á daginn. Frá kl. 17:30 til kl. 20:00 mældust 84 eldingar norðan við 63°N. Veðrið gekk yfir Reykjanesskaga, höfuðborgarsvæðið, Faxaflóa og Snæfellsnes.“ Að sögn Veðurstofu Íslands.
,,Að jafnaði verða tvö þrumuveður af þessari stærð á Íslandi á ári. Hins vegar hefur ekki orðið svona mikið þrumuveður á höfuðborgarsvæðinu sl. 20 ár, eða eins langt og eldingamælingar ná. Tíðni þrumuveðra er mun lægri á Íslandi en í suðlægum löndum. Í Reykjavík eru að meðaltali tveir þrumudagar á ári, en fjórir undir Mýrdalsjökli og Vatnajökli. Á Norðurlandi verða þrumuveður að jafnaði annað hvert ár á hverjum stað.
Eldingar valda miklu manntjóni á jörðinni og áætlað hefur verið að alls farist um 24 þúsund manns á ári í eldingaslysum sem jafngildir því að einn Íslendingur myndi farast á ári. Eldingatíðni er hæst í hitabeltinu; manntjón er þar mikið en skráning slysa brotakennd. Nú eru yfir 150 ár síðan manntjón varð í eldingu á Íslandi. Öruggast er að halda sig innandyra eða inni í bíl í þrumuveðri.
mynd
Þrumuveðrið kom beint úr suðri. Hér má sjá breiddargráðu á staðsettum eldingum sem fall af tíma.

mynd
Fjöldi eldinga á hverjum 30 mínútum í þrumuveðrinu 21. febrúar 2019; norðan 63°N (rautt) og 55-63°N (grænt).
mynd
Spákort um óstöðugt loft (gulur litur) spáði veðrinu nokkuð austar en raunin varð.
mynd
Veðursjármyndir sýna öflugt endurkast frá skúragarðinum / þrumuklökkum þegar þeir komu úr suðri.“

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Risagjaldþrot Heima ehf. – Heimahúsið í sama húsnæði

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?